Hrun II

Nú sit ég frábært námskeið í sagnfræði niður í Háskóla Íslands sem Guðni Th. Jóhannesson kennir. Það fjallar um hrunið. Reyndar stutt liðið frá því en þeim mun „skemmtilegra“ að fara yfir græðgi og fífldirfsku áranna fyrir og sjálft hrunið. Við vorum svo blind.

Nú stefnir í næsta hrun. Að minnsta kosti miðað við fjölda byggingarkrana í borginni. Bílalánin eru komin aftur á kreik. Greiningardeildir bankanna byrjaðar aftur að þenja raddböndin í fréttatímum ljósvakamiðlanna. Gervihagkerfi bankanna farið á fullt. Greinilega að opnast lánalínur út í hinum stóra heimi þrátt fyrir gjaldeyrishöft. Eða erum við bara aftur farin að lána sjálfum okkur með peningum sem eru ekki til?

Reisa á 18.000 fermetra einkarekna læknamiðstöð í Lindunum í Kópavogi á niðurgröfnum grunni 12.000 fermetra verslunarmiðstöðvar fyrir hrun.  Fyrsti kraninn er risinn.  Sá það með eigin augum í gær þegar ég fór í Elko og Krónuna. Landspítalinn má fara að undirbúa lokun.  Amerískt heilbrigðiskerfi hinna ríku með tryggingakerfi einhvers flokksdindils úr Sjálfgræðgisflokknum er handan hornsins.

Og til að slá ryki í augu okkar meðan þessir tveir flokkar ræna því sem eftir stendur af íslensku velferðarkerfi, þá gasprar fyrrverandi lögga og bindindismaður um sölu á áfengi í matvörubúðum.  Frumvarp sem verður aldrei samþykkt frekar en fyrri daginn að það var flutt.  Athyglinni skal beint annað meðan bófaflokkarnir tveir fremja sína glæpi gegn þjóð sinni.

Næsta Búsáhaldarbylting

Hér er ekkert skip frá ISIS að fara leggja upp að landi. Landhelgisgæslan myndi stöðva slíkt í fæðingu með litlu, dönsku, gömlu fallbyssunum á dekkjum skipa sinna og 10 MG3 vélbyssunum sínum. Gott og vel.

Hef hinsvegar áhyggjur af öllum hinum hundruðum vélbyssa sem löggan hefur yfir að ráða.  Verða þær notaðar í næstu búsáhaldabyltingu?  Þegar skríllinn er loksins búinn að fá nóg af græðgi og hagsmunagæslu núverandi ríkisstjórnar fyrir hina ríku?

Munum komast að því kl. 17:00 á mánudag þegar við mótmælum þessum skríl sem nú hefur setið að völdum í rúmt ár og ekkert gert nema skara eld að eigin köku og skellt byrðum niðurskurðar á herðar fólks sem síst má við þeim.

Kannski erum við aðiens of fljót á okkur.  Kannski betra að fá niðurstöðuna úr niðurfellingunni fyrst á hreint.  Fólk býst reyndar ekki við miklu. Síst af öllu með Tryggva Þór Herbertsson yfir öllu dæminu. Maðurinn trúir ekki einu sinni sjálfur á þessa aðgerð.  Veit betur eins og við efasemdarfólkið.