Upp á heiði með heila klabbið!

Skömm er að kjörsókninni.

Ef fólk nennir ekki á kjörstað þá velja aðrir fyrir þau.  Einfalt!  Og það gerðist núna.  Að greiða atkvæði er helgur réttur en jafnframt heilög skylda.  Ekkert til að hafa í flimtingum eftir baráttu formæðra okkar og feðra fyrir þessum réttindum.  Þegar ég sting atkvæði mínu í kjörkassann, geri ég það minnugur baráttu kynslóðanna á undan á mér.  Væri óskandi að fleiri gerðu slíkt hið sama.

Sama sveitta ástandið heldur áfram í mínum heimabæ.  Eins gott að hafa varann á sér og horfa hræddur um öxl. Þetta lið er til alls víst.  Björt Framtíð er þó skárri en Framsókn sem hækja íhaldsins.  Reykjavík er á brúninni ef Sóley og/eða Halldór pírati ganga ekki í lið með fráfarandi meirihluta.  Mega ekki hleypa gömlu íhaldi að með tvær framsóknarskessur í farangrinum.

Útvarp Saga hefur þyngri slagkraft en fólk heldur.  Ljóst er að 10,5% kusu gegn Mosku í Sogamýri.  Af skipulagsástæðum eða trúarástæðum vitum við ekki alveg. Plottið virkaði þó snilldarlega og tveir borgarfulltrúar komust inn í staðinn fyrir engan áður.  Ólíkt félögum sínum í ríkisstjórninni mun þeim þó sennilega ekki gefast mikið færi á að efna kosningaloforðið og hrifsa lóðina aftur til borgarinnar.  Ekki að skuldaleiðrétting.is séu efndir á loforðum.

Ég skil reyndar skipulagsástæðurnar.  Er þessi lóð ekki útivistarsvæði fyrir nágrennið?  Og hvað með grenndarkynninguna.  Af hverju mega íbúarnir ekki ráða einhverju um skipulag síns hverfis.  Minnist þess þegar troða átti Digraneskirkju á friðaðan Víghólinn í Kópavogi.  Var byrjað að grafa og allt þegar loks var hlustað á mótbárur.  Fyrir utan gildi hólsins sem útsýnisstaðar og útivistarsvæðis.

Auðvitað á að kjósa um staðsetningu trúarbygginga; kirkna, moska og hofa. Eins þegar hola á hótelum niður í gróin íbúðarhverfi.  Þvílík fásinna sem það er nú.  Er ekki bara hægt að byggja heilan klasa af kirkjum, moskum, hofum og hótelum upp á Hólmsheiði við hliðina á væntanlegu fangelsi?  Þá fáum við loksins frið fyrir trúarnötturum, túristum, gróðapungum og Hraunurum; öllu glæpahyski á einu bretti.  Vantar bara stjórnmálamennina og þá væri næstum fullkomið að búa hérna.

Pólítísk rétthugsun

Fyrrverandi samstarfsfélagi skólaði mig duglega í pólítískri rétthugsun.  Hve fáranlegt væri að fylgja fjöldanum þrátt fyrir að hafa aðra og ólíka skoðun. Nákvæmlega það sem er að gerast núna þegar oddviti Framsóknar í Reykjavík segist ætla að afturkalla lóðarveitingu til múslima.

Allt samfélagið fer á hvolf og kallar hana rasista þrátt fyrir að flestir hugsi á svipuðum nótum innst inni. Það vill enginn fá mosku í túnfótinn hjá sér. Hvað þá á besta stað eins og áætlað er núna við Sogamýri.  Svo á að fara að reisa rússneska réttrúnaðarkirkju við Nýlendugötu nálægt slippnum. Ömurlegt svona misskilið dekur borgarstjórnar við forneskjuleg trúarbrögð miðalda.

Fjölmenning er góð og gild en aðeins ef hún lagar sig að okkar vestræna og frekar frjálslynda samfélagi.  Algjör óþarfi að moka undir afturhaldsöfl frá útlöndum.  Eigum nóg með okkar eigin afturhaldsseggi í Framsókn og Sjálfstæðisflokknum.

Ég spái því að útspil forystukonu Framsóknar í borginni muni koma henni inn í borgarstjórn.  Dugir þar til hlustendahópur Útvarps Sögu sem er lítið um útlendinga gefið.  Persónulega finnst mér fáranlegt að gera afturhaldsöflum hátt undir höfði.  Sama hvaðan þau koma.

Framtíð landsins

Hvað sem má segja um heimsmetið hans Sigmundar í skuldaniðurfellingu sem féll á föstudaginn þá er undarlegt hve önugur forsætisráðherra var þennan sama dag.  Sigurdaginn hans.  Sást reyndar seinna hoppandi eins og hálfviti ásamt restinum af þingflokknum á frægri mynd sem hefur gengið um netheima eins og eldur í sinu.

Ég vona svo innilega að fólk sem hefur staðið í skilum með sín lán fái einhverja leiðréttingu.  Samt leitt að þrotabú bankanna greiði ekki reikninginn eins og Sigmundur Davíð lofaði.  Skattur á fjármálafyrirtæki dekkar þetta ekki. Og hvert er grínið með því að fólk „megi“ nota séreignarlífeyrir sinn til að greiða niður húsnæðislánið? Reiknimeistarar mæla frekar með því að fólk geri það ekki og geymi sparnaðinn fram til starfsloka.

Sveitastjórnarkosningar nálgast og ég skil engan veginn af hverju borgarbörn kjósa Framsókn í bæjarstjórn. Hvaða mögulega erindi á þetta lið í nærpólítík höfuðborgarsvæðisins?  Sveitavargar sem boða einangrun, höft og afturhald.  Verð rosalega vonsvikinn ef þetta lið nær inn bæjarfulltrúa í Kópavogi.  Var alveg nóg að hafa Ómar.  Guð forði okkur frá montrassinum Birgi.

Hvað þá Framsókn og flugvallarvinir í Reykjavík.  Oddvitinn úr Kópavogi með svo mikið sjálfstraust að jafnvel fólk gapir þegar hún opnar munninn.  Hvaða rugl er þetta að berjast fyrir einhverju bresku mannvirki frá seinna stríði?

Þetta eru vissulega stríðsminjar en auðvitað mun innanlansflugið fara úr Vatnsmýrinni með tímanum og flytjast til Keflavíkur.  Gerist eðlilega, smá saman og án kosninga.  Tilgangslaust að reyna festa flugvöllinn þarna um alla framtíð á besta byggingarlandi borgarinnar.  Sem er reyndar mýri. Dýrt að byggja þarna.  Langt niður á fast land.

Rökin fyrir veru vallarins í Vatnsmýri eru þau sömu og fyrir bílastæðahúsum borgarinnar. Að hafa hann nógu nálægt. Tilfinningarök um sjúkraflug eru tómið eitt. Lítið mál að efla bráðadeildina í Keflavík.  Og það á ekki að vera hægt að nota þyrlur því þær hafa ekki þrýstijöfnunarbúnað.  Skrítið! Veit ekki betur en að margir sjúkraflutningar fari fram í þyrlum og að þær lendi við Borgarspítalann í Fossvogi.  Ekki á Reykjavíkurflugvelli.

Hér er bara sama gamla hreppapólítíkin í gangi í boði Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.  Reynt að halda lífi í úreltu kerfi vegna gamallar spillingar. Sjúkraflug frá Akureyri.  Hvers konar rugl er það!  Landhelgisgæslan á að sjá um allt sjúkraflug.  Punktur.  Ekki einhverjir einkaaðilar sem hrapa flugvélum.

Núverandi stjórnarflokkar eru krabbamein hinnar íslensku þjóðar.  Verðum að kjósa þetta lið burt.  Byrja í sveitastjórnunum.  Vinna okkur svo upp og hreinsa Alþingi.  Hvorki meira né minna en framtíð landsins veltur á því.