Síðasti Móhíkaninn

Þeim fer blessunarlega sífellt fækkandi sem reykja að staðaldri á Íslandi. Stöðugur áróður hefur sín áhrif og eflaust himinhátt verð einnig.  Svo eru þessi grey hvergi velkomin lengur.  Rekin út í hvaða veðri sem er á heimilum og vinnustöðum.  Og nú vill bæjarfulltrúi í Kópavogi banna þeim að reykja í biðskýlum, á göngustígum, fyrir utan innganga að byggingum og öðrum almenningsrýmum utandyra.

Djöfull líst mér vel á þá hugmynd!  Er orðinn svo leiður á að þurfa hanga fyrir utan skýlin í alls kyns veðrum meðan fíklarnir sjúga líknaglana sína í skjóli fyrir veðrum og vindum.  Er minnistætt þegar þrjár skessur boluðu mér með látum úr skýlinu við Menntaskólann í Kópavogi.  Þær þurftu reyk og nenntu ekkert að hlusta á röflið í mér.

Reyndar er ég ekkert sérstaklega hrifinn af svona boðum og bönnum. Reykingarfólk á bara að finna hjá sjálfu sér hvar er viðeigandi að rífa upp rettuna.  Flestir bregða sér afsíðis fjarri inngöngum og úr biðskýlum.  En ekki sumir gestir okkar.  Má þakka fyrir að þeir skjóti ekki logandi stubbunum í andlitið á mér.  Engin tillitsemi þar.

Fjórðungur

Hvað er frjálslynt við Framsókn?  Einn mesta sérhagsmunavörð okkar samfélags.  Af hverju sækir leiðtogi þess alþjóðaþing frjálslyndra flokka í Rotterdam?  Getur það verið út af nafni flokksins á ensku; Progressive Party Fáranlegt!  Væri ekki nær að flestir aðrir flokkar myndu mæta þarna?

Mér verður óglatt í hvert sinn sem þessi forsætisráðherrabjáni birtist á skjánum með sitt óskiljanlega tuður.  Af hverju gerir hann mér og flestum öðrum ekki greiða og lætur sig hverfa?  Hvað var fjórðungur kjósenda að hugsa með því að leiða þennan kjána til valda?

Skuldaleiðrétting my ass!  Tómar sjónhverfingar.

Mun kjósa eitthvað annað

Guðni Ágústsson er maður að meiri fyrir að taka ekki þátt í þessum sveitarstjórnarsirkus í Reykjavík.  Tek ofan fyrir honum fyrir að ákveða að fara ekki fram.  Hefði verið svo örvæntingarfullt eftir brottfall Óskars spillingarpésa í eigu Eyktar h/f.  Hvað eru líka fjósamenn að gera á mölinni?

Margt fer í taugarnar á mér mánuði fyrir kjördag.  Til dæmis uppstilling Samfylkingarinnar í mínum heimabæ Kópavogi.  Af hverju fékk Pétur Ólafsson ekki að taka við af Guðríði sem oddviti?  Nei, frekar var einhver nafni hans Hrafn Sigurðsson settur sem oddviti og Ólafsson yfirgaf flokkinn frekar en að þiggja aftur þriðja sætið á listanum.

Kann hvorki við uppstillingar né valdabrölt einhverra aðfluttra sem heimta nógu þægilegt sæti á kostnað þeirra sem hafa búið hér lengst af og unnið sig upp innan flokksins með dugnaði.  Ætla því að refsa flokknum fyrir hugsunarleysi sitt.  Kýs eitthvað annað eftir mánuð.  Látið ykkur þetta að kenningu verða Samfylkingin í Kópavogi!