Neyðarkallinn

„Má bjóða þér að kaupa neyðarkallinn?“ hef ég verið spurður fyrir utan allar verslanir sem ég hef rekið inn nefið þessa helgi.  Ætíð afþakkað.  Hef engan áhuga á að greiða fyrir leitir að erlendum ferðamönnum upp á fjöllum.  Komið bara á tryggingakerfi svo allir fái sitt.

Finnst sérkennilegt að þegar ég hafði sagt „nei takk“ fékk ég svarið „takk fyrir stuðninginn“. Þrátt fyrir að hafa ekki keypt nokkurn skapaðan hlut.  Fannst eins og væri verið að hæðast að nísku minni.  En fattaði svo að setningin er til þess gerð að sá fræi samviskubits svo maður snúi til baka og kaupi neyðarkallinn.

Kaupi reyndar flugelda af Landsbjörg um áramót.  Sú söfnun dugir ekki lengur eftir að aðrir fóru að selja púður.  Svo neyðarkallinn er nauðsynlegur.  En það er ekki þar með sagt að ég neyðist til að kaupa hann.

Ekki frekar en álfinn, naglann, bleiku slaufuna, og annað styrkjadæmi.  Pólítísk rétthugsun heimtar að maður styrki allann fjandann fyrsta hvers mánaðar.

Hefnd hrunflokkanna

hjartasárTekið úr viðtali við Maríu Ellingsen leikkonu í Fréttablaði helgarinnar.  Deili hennar vangaveltum.  Hvers vegna þessi heift og þvermóðska hjá Vegamálastjóra? Forverar hans voru áberandi sáttfúsari.

hjartasár2Nú skal valdið sýnt og „vinstra“ liðið slegið utan undir með helblárri hendi fyrir að voga sér að halda stjórn yfir heilt kjörtímabil og tala máli náttúru landsins. Heiftin gengur svo langt að farið er í flatan niðurskurð þrátt fyrir bættan efnahag landsins. Þjóðinni skal refsað fyrir að hafa hleypt krötum og kommum að kjötkötlunum.

hjartasár3Hef lengi grunað að lögreglan væri á speed-dial hjá núverandi stjórnarflokkum. Eins og sagan sannar með föður borgarstjórans sem fékk engar stöðuhækkanir vegna vinstri skoðana sinna meðan flokksgæðingar færðust upp stigann óháð getu og hæfileikum.

Virkilega aumt að sjá eldri borgara handtekna fyrir að vilja vernda náttúruna fyrir vinnuvélum verktaka úr Sjálfgræðgis- og fjósafasistaflokkum landsins. Jóhannes Kjarval snýr sér í gröf sinni.

Afgreiðsluskotmörk

Aumasta fólk sem ég veit um komst í fréttirnar í vikunni.  Fávitar sem veittust að afgreiðslustúlku í Bónus.  Hvað er að svona liði?  Getur það ekki skeytt skapi að hvort öðru?  Sennilega ekki.

Varð oft vitni að svona hegðun sem næturvaktstjóri á Select.  Og varð stundum fyrir henni.  Tók eftir að slíkir vesalingar herjuðu frekar á kvenkyns starfsmenn. Einhver misskilningur í gangi að þær svöruðu síður fyrir sig og væru veikari.  Bull og vitleysa.

Einn starfsmaður Bónus segir að dónaskapurinn gagnvart sér hafii minnkað í samræmi við hærri aldur.  Yngsta og nýjasta afgreiðslufólkið fær verstu meðferðina.

Og þessir ömurlegu viðskiptavinir vita að afgreiðslufólkið má ekki svara fyrir sig án þess að missa vinnuna í kjölfarið.  Skítmenni sem eiga skilið hnefahögg í andlitið.

Tveir fávitar sem grættu samstarfsfólk mitt á Select meðan ég var inn á lager munu verða skallaðir ef ég sé þá aftur.  Leigubílstjóraræfill sem hatar konur og dvergur á Suzuki smájeppa sem hatar fólk óháð kyni.  Báðir sóun á súrefni og þess verðir að vera rotaðir við fyrsta tækifæri.