Nýjasta nýtt er bindindi

Íslendingar eru sauðir upp til hópa.  Fyrir hrun gekk allt út á falleg og dýr heimili. Eftir hrun fór þetta sama pakk í Crossfit, hjólreiðar og hlaup.  Sixpack tók við af hönnuðum húsgögnum og Range Rover.

Nýjasta nýtt er að fara í áfengismeðferð og svo mæta í viðtal hjá einhverju glanstímariti eða blaði til að segja frá því.  Sérstaklega er þessi lífstílsbreyting vinsæl hjá leikurum og hefur eiginlega tekið við af hestamennskunni.  Vissi ekki að maður ætti að monta sig af því að hafa lagt áfengi til hliðar.  Rétt eins og þau séu orðin betri en við hin sem njótum enn léttra vína og bjórs.

Sjálfur er ég eins stemmdur og Frank Sinatra heitinn.  Hann skyldi ekki bindindisfólk og treysti þeim ekki.  Fannst slíkt fólk vakna fúlt og hafa enga möguleika á að líða betur þann daginn.  Fyrir mér er algjört bindindi eins og að halda í sér hægðum. Gengur ekki upp til lengdar.

Gillzenegger

Gillzeneggermálið heldur áfram á síðum glanstímaritanna og á vefnum.  Fólk skiptist í hópa með og á móti Agli einkaþjálfara.  Viðurkenni fúslega að ég hoppaði á vagninn sem trúði öllu illu upp á hann og kærustu hans á sínum tíma.

En fékk svo bakþanka þegar ekkert fannst til að sakfella parið fyrir nauðgun. Egill hefur síðan viðurkennt að þau stundi trekant við tækifæri.  Slíkt hafi verið í gangi téð kvöld.  Vitni og ljósmyndir sanna að innilegt var á milli stúlkunnar og kærustu Egils áður en þau fóru þrjú saman í leigubíl heim af Austur.

Margt bendir til þess að stelpan hafi fengið móral eftir ævintýrið og ekki verið sátt. Spjallað við vinkonur sínar en ekki sagt allan sannleikann um sinn hlut. Svo verið hvött til að kæra nauðgun.  Skiljanleg viðbrögð, enda ung að árum og ekki eins reynslumikil og Stóri og kærastan.

Eitthvað virðist pólítík blandast inn í málið.  Átök milli Vinstri – Grænna og Sjálfstæðisflokks.  Þarf varla að útskýra hvoru meginn málsaðilar falla.  Þóra og Sóley Tómasdætur á Nýju Lífi og í borgarstjórn una sér ekki hvíldar fyrr en Gillz er á bak við lás og slá.

Lífsleikni og Heilræði Gillz fóru þversum ofan í femínista.  Þær föttuðu ekki grínið. Kaldhæðnina.  Stórkarlalegt grobbið.  Hnakkamállýskuna.  Ekki beint lífsbækur hins mjúka (undirgefna) manns sem femínistar kjósa sér sem maka.

Ekki bætti úr skák þegar Þykki fékk sér hvítvín með vinum sínum um árið og þeir skelltu sér á netið með fullyrðingum um að sumar þyrftu á að halda af fá „beinstífan í loðið skottið“.  Var það fyllerí túlkað sem hótun um nauðganir.

Egill Einarsson er síst allra en má eiga það að hafa skapað sér gott nafn sem vel menntaður einkaþjálfari og höfundur lífsleiknibóka.  Hvort mæður vilja að hann sé fyrirmynd sona þeirra er mál sona þeirra.  Við veljum okkur fyrirmyndir óháð áliti foreldra okkar.  Eitthvað sem femínistar fatta ekki.