Hneykslun mín

Hef undanfarið verið að hneykslast á fataauglýsingum þar sem barnungar stúlkur eru klæddar upp eins og fullorðnar konur.  Fór nýlega aðeins að pæla í hneykslun minni.  Hvað fer svona í taugarnar á mér?

Hér er ekkert klám á ferðinni.  Engin nekt eða misnotkun.  Bara einhverjir að klæða litlar stúlkur upp um aldur.  Hvern andskotann kemur mér það við?

Sömu rök eiga við hér og um allar myndir af konum á öllum aldri.  Ef einhver æsist kynferðislega upp við að skoða þær, þá er það hans eða hennar mál.

Að ég sé að fetta fingur út í myndbirtingar auglýsenda flokkast undir ritskoðun. Og lítilsvirðingu við konur.  Þær eru fullfærar um að verja sig sjálfar.  Hneykslun mín hjálpar þeim lítið.

Rigningarnótt

Nennti ekki niður í bæ á Rigningarnótt.  Á enga regnhlíf.  Borgin hefði betur haldið hátíðina viku fyrr í góðviðri og sól.  Þvílík mistök.  Ljóta reglan að tvær vikur verði að líða á milli Gleðigöngu og Menningarnætur.  Hlýtur að vera hægt að gera undantekningu þegar frídagur verslunarmanna er seint á ferðinni eins og núna.

Sat heima í mestu makindum og horfði á tónleikana í sjónvarpinu.  Hélt þó smá framhjá og hlýddi á Valdimar á netvarpi Bylgjunnar meðan Hjaltalín hjalaði á RÚV. Gat þó ekki sleppt „Halo“ hjá Sigríði Thorlacius.

Sá annars flotta flugeldasýningu úr Kópavoginum.  Hef ekki verið heima þau þrjú ár sem ég hef búið hérna.  Það sem sást ekki var í sjónvarpinu.  Til hvers að dröslast þarna niður eftir í sudda og viðbjóði.

Mömmudrengjavæl

Kann Dr. Gunna litlar þakkir fyrir að hafa fengið Friðrik Dór til að syngja fyrir sig á næstu barnaplötu sinni.  Ömurlegt væl eins og allt sem kemur frá Friðriki og bróður hans Jóni Jónssyni.

Slekk alltaf á hljóðinu þegar 10-11 auglýsingin birtist í sjónvarpinu.  Meika ekki vælið í Jóni.  Svo er einhver vinur hans og samstarfsfélagi, hvers nafn ég nenni ekki að flétta upp, búinn að gefa út væluplötu í sama stíl.  Hver hlustar á þennan viðbjóð?

Hallast helst að því að SUS-arar og álíka skoðanalaust pakk kaupi þetta ógeð í plötubúðum.  Hef meira að segja fundið upp heiti yfir svona garg: mömmudrengjavæl.