Sporin hræða

Sporin hræða þegar kemur að væntingum um nýja ríkisstjórn.  Forverar silfurskeiðadrengjanna tveggja settu landið á hausinn.  Bjarni kemur auk þess af frægri viðskiptafjölskyldu sem má muna fífil sinn fegurri.  Sigmundur er svo sonur manns sem sölsaði undir sig ábátasamt ríkisfyrirtæki og seldi fyrir metfé.

Sporin hræða!  Munu þessir föðurbetrungar ekki bara endurtaka leikinn í sinni helmingaskiptastjórn?  Af hverju bauð Sigmundur sig fram í Norðausturkjördæmi? Hvar mun óstofnað ríkisfyrirtæki um væntanlegt olíuævintýri enda?  Sennilega í kjöltu þeirra feðga eftir „sölu á almennum markaði“.

Og við vitum að ekkert mun gerast næstu fjögur árin hvað varðar samráð olíufélaganna um verðmyndun á eldsneytislítranum með Bjarna sem fjármálaráðherra.  Og útgerðin fær frítt spil í sínum málum.  Gott ef Engeyjarættin græðir ekki einhverjar krónur á öllu saman.

Verra er að helmingi landslýðs finnst þetta bara allt í lagi.  Svona eigi þetta að vera.  Vilja jafnvel sjálf fá hlutdeild í illa fengnum gróðanum svo þau geti grillað á kvöldin með góðri samvisku og keypt sér nýtt innbú og jeppa. Minna mig á villimenn fyrri alda sem seldu lönd sín og dætur í hendur landkönnuða fyrir glitrandi perlur.

Nú fagna þeir sem telja sig frjálslynda og til hægri.  Bölva og spýta á eftir Jóhönnu og Steingrími.  Sjá gull og græna skóga framundan.  Að nú muni hollustan við hrunflokkana borga sig margfalt.  Kreppan sé loks á enda.

Fatta bara ekki að þeir eru kannski til hægri en langt í frá frjálslyndir.  Upp til hópa hommahatarar, kommahatarar, kvenhatarar, lýðræðishatarar, umhverfissóðar og sveittir kallar á síðasta söludegi.  Fulltrúar löngu liðinnar fortíðar sem við hinn helmingur þjóðarinnar viljum helst gleyma.

Og kreppunni lýkur ekki með stjórnarskiptum.  Stuðningsmenn nýrrar ríkisstjórnar eiga eftir að finna það fljótlega á eigin skinni.

Stóru augun

Í fyrradag nálgaðist ég blokkina hennar mömmu.  Staldraði við til draga heyrnartólin úr eyrunum.  Tveir gaurar og nágrannar hennar stóðu álengdar.  Bentu og hlógu að mér feita flykkinu.  Á meðan dingluðu þeir sem óðir til að fá einhvern til að hleypa sér inn á stigagang.

Ég sleppti skammarræðunni og nálgaðist þá rólega með lyklana að útidyrunum í hendinni.  Augum á þeim urðu risastór af hræðslu.  Bjuggust sennilega við að ég myndi éta þá í refsingarskyni fyrir stríðnina.

Glotti hinsvegar bara og hleypti þeim inn.  Til hvers að reiðast börnum fyrir að benda á hið augljósa?  Stóru augum dugðu mér fyllilega.

Dagar víns og rósa

Dagar víns og rósa hófust í dag á Laugarvatni og munu víst standa næstu fjögur árin.  Hunang mun drjúpa af hverju strái, gull og olía finnast í hverjum firði og skuldir heimilanna gufa upp eins og dögg fyrir sólu.

Verður maður ekki að vera jákvæður og bjartsýnn eins og helmingurinn af hræðunum sem búa á þessum kletti?  Gefa þessum strengjabrúðum smá séns til að breyta landinu í paradís á jörðu.  Þó ekki fjögur ár.