Hlutlaus fréttaflutningur

Tók eftir því að útsendarar RÚV voru sendir á kosningavökur gagnstæðar skoðunum þeirra.  Sjálfstæðisdúkkan á vöku Samfylkingar og öfugt.  Hefðu mátt loka Boga Ágústsson inni í skáp.  Svo æstur varð hann í hvert sinn sem betur glitti í nýja stjórn hrunflokkanna.  Hélt um tíma að hann myndi míga á sig af spenningi.

Óveðursskýin hrannast upp

ÖMURLEG ÚRSLIT!  Er í skapi næst að koma mér af þessum kletti sem snöggvast.  Hvers konar heilaleysingjar og hálfvitar byggja þetta sker eiginlega!?  Haldið þið virkilega að nýtt eyðslutímabil sé í vændum.  Reinsi og innbú?

Jú, kannski, ef bankarnir spila með og taka aftur þátt í bullinu. Uppgangsskeið út á krít er ávísun á annað hrun.  Svo lítið kann ég í hagfræði.  Taldi samlanda mína vita betur eftir að þessir tveir flokkar settu landið næstum því á hausinn.

Fólk út í heimi hristir hausinn yfir heimsku okkar og skilur hvorki upp né niður.  Svona svipað og ef Þjóðverjar tækju upp á því að kjósa nasista aftur yfir sig.  Ég kalla þetta stærsta þjóðarsjálfsmorð sögunnar.

Ekki koma grátandi til mín þegar ljóst verður að innantóm loforðin verða ekki efnd.  Ekki halla höfði á öxl mína þegar helmingaskiptin hefjast á ný.  Ekki benda á mig heldur lítið í spegil þegar syrta fer í álinn á næsta kjörtímabili. ÞIÐ kusuð þessa hörmung yfir ykkur!

„Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera.“  (Lúkasarguðspjall 23:34)

Ugla sat á kvisti

Kjördagur runninn upp og það lítur út fyrir að helmingur þjóðarinnar ætli að kjósa yfir sig hrunflokkana.  Minnið hjá þessu liði er eins og lélegur harður diskur sem er straujaður á fjögurra ára fresti.  Guð hjálpi þeim því þau vita eigi hvað þau gjöra.

Sjálfur er ég aftur orðinn óákveðinn.  Finnst rangt að verðlauna kratana fyrir að setja stjórnarskránna á ís, semja lyfjafrumvarpið og féfletta öryrkja og gamalmenni.  Norræn velferðarstjórn my ass!  Og ekki er skárra að splæsa atkvæðinu í VG.  Jafnvel þó Kata sé ágæt.

Ákveð mig sennilega inn í kjörklefanum.  Dúndra atkvæðinu á einhvert nýju framboðanna.  Ugla sat á kvisti….