Fíkn þrátt fyrir skattakúgun

Skil ekkert í því að yfirvöld séu að eltast við eiturlyfjasmyglara.  Bara sóun á tíma og fjármunum löggæslunnar.  Þarna eru einföld skattalagabrot á ferðinni.  Innflutningur og sala á varningi framhjá yfirvöldum.

Boð og bönn gagnvart áfengi og öðrum eiturlyfjum eru tímaskekkja dauðans.  Leyfum fólki að drepa sig án þess að skattleggja það fram í rauðan dauðann.

Römm er sú taug

Fjórflokkurinn er spilltur enda á milli.  Nema kannski Vinstri – Grænir. Eru ærleg í boðum sínum, bönnum og skattahækkunum án þess að stilla sér upp við kjötkatlana.

Öllum er ljóst að íhald og fjósafasistar ætla að rugla saman reitum eftir kosningar og skipta öllu á milli sín til helminga.  Ruglið frá 2007 endurtekur sig og landið fer endanlega á hausinn.  Allt vegna þess að helmingur þjóðarinnar eru fávitar sem þrá ný húsgögn í stofuna hjá sér og bíl sem passar við.  Og allt á lánum.

Þessi sami helmingur sér ekki þann árangur sem hin fyrsta hreina vinstri stjórn hefur náð síðastliðin fjögur ár.  Horfir bara á nauðsynlegar skattahækkanir og þau mál sem komust ekki í gegn á kjörtímabilinu vegna andstöðu Sjálfstæðisframsóknarflokksins.

Stundum verður maður að treysta blint.  Nú er sá tími kominn.  Þrátt fyrir hægrisinnaðan formanninn og gufuna varaformanninn þá er ég að gæla við að kjósa Samfylkinguna.  Þar er fleira gott fólk en forystan. Myndi halla mér að Vinstri – Grænum ef þau væru ekki svona þröngsýn, bannglöð og á móti Evrópusambandinu.

Björt Framtíð er samansafn þingmanna sem komust ekki á lista í prófkjörum Samfylkingar og rugludalla frá Besta flokknum.  Það lið verður bara að leita sér að annarri vinnu eftir kosningar.  Ég ætla ekki að auðvelda þeim lífið með mínu atkvæði.

Var við það að kjósa Pírata en hætti snögglega við þegar ég fattaði að þau eru ekkert sérstaklega hlynnt höfundarrétti listamanna.  Vilja bara fá allt ókeypis á netnu.  Höfundaréttur er tekjulind tónlistarmanna, rithöfunda og annarra listamanna.  Eftirlaunasjóður skapandi einstaklinga.  Mér dettur ekki í hug að svipta því öryggisneti frá þeim.

Tæp vika er til kosninga og villuráfandi sauðir eins og ég silast aftur til heimahaganna.  Ekkert smáframboðanna heillar mig nógu mikið til að svíkja Kratahjartað í mér.  Römm er sú taug.  Ég vil kjósa um ESB. Annað er glapræði í boði LÍÚ og bændamafíunnar.

Segir mér enginn fyrir verkum

http://www.pressan.is/Frettir/Lesa_Innlent/vard-fyrir-aras-a-klambratuni-eg-var-skjalfandi-af-hraedslu-og-atti-erfitt-med-ad-halda-aftur-af-tarunum

Ömurlegt hvernig fólk getur brugðist við einföldum tilmælum. Lausaganga hunda innan borgarmarkanna er bönnuð.  Líka á Klambratúni.  Börn sem ekki umgangast dýr daglega geta hræðst þau. Lágmark að taka tillit til þess.

En nei, bolurinn sem átti hundana fannst rétt að koma sínum sjónarmiðum fram með ofbeldi.  Aumingi sem myndi aldrei dirfast að ráðast svona á aðra þursa.  Vesalingur sem leggur sennilega líka hendur á konuna sína og hundana tvo.

Er skrítið að maður vogar sér ekki að gera athugasemd við hegðun fólks á förnum vegi.  Gæti kostað mann lífið.  Oft hefur mig langað til að segja eitthvað þegar fólk reykir inn í strætóskýlum en látið það vera af ótta við að fá á kjaftinn.  Hvað þá þegar menn eru rekandi við og hóstandi á mann inn í vagninum.  Hvað er málið?

Íslenskir karlmenn eru margir hverjir þvílík skítmenni.  Og þykja flottir fyrir vikið. Bera vott um sjálfstæði og þor.  Fáranlegt!  Svona ræfla á að leiða bak við hús og berja duglega.  Yfirgangsseggir eiga hiklaust að fá hnefa í andlitið.  Annars halda þeir áfram út í hið óendanlega í frekju sinni.  Þeir skilja ekkert annað en ofbeldi.