Afhendingar

Er það bara ég eða eru verðlaunaafhendingar skrítnar?  Af hverju kyssa miðaldra karlar alltaf ungar íþróttastelpur á kinnina og strjúka stundum á þeim rassinn meðan ungir íþróttastrákar sleppa við allt slef og strokur frá miðaldra konum?  Af hverju geta þessir miðaldra geltir ekki látið sér handaband nægja.  PERVERTAR!!!

Hvíl í friði

Líkræður voru haldnar yfir stjórnarskrárfrumvarpinu í gær og það lagt til hvílu að eilífu.  Ég er núna enn ákveðnari en áður að kjósa ekki Samfylkinguna.  Og hið sama gildir um Bjarta Framtíð og Vinstri-Græna. Þarna kom ykkar rétta eðli fram!

Sýnir sig bara að fulltrúalýðræðið er fullreynt á Íslandi.  Kominn tími til að leggja Alþingi niður og koma á fót beinu lýðræði í gegnum netið.  Þetta lið niður við Austurvöll veldur ekki hlutverki sínu.  Enda flest á spenanum hjá einhverjum.