Þakka þér atvinnuleysi!

Ég er ekki einn af þeim sem harma að hafa misst vinnuna á sínum tíma. Fyrir mig var það hálfgerð blessun.  Kjaftshöggið sem ég þurfti á að halda. Kærkomin hvíld frá lífinu. Var orðinn svo illa haldinn af ranghugmyndum, félagsfælni og kvíða.  Og hélt þeim gangandi með bjórdrykkju.

Peningaleysið leiddi í ljós að mér var viðbjargandi frá ölinu.  Skortur á áreiti veitti mér stundarfrið til að kynnast sjálfum mér á ný.  Ég þekki ekki lengur þennan mann sem ég hafði að geyma fyrir hrun.  Mikið rosalega átti hann bágt!

Er ekki að segja að allt sé núna í himnalagi. Bara að nú þekki ég gjóturnar og kann að forðast þær. Virði ekki lengur viðlits svipina sem fara á stjá þegar skyggja tekur í sálu minni.  Skrifa mig sérhvern dag frá ruglinu sem ratar í kollinn á mér.  Syng í sturtu til að létta huga minn. Fer út að ganga. Geri grín að sjálfum mér.

Fyrir hrun var líf mitt á villigötum þrátt fyrir tilraunir góðra til að stýra mér í rétta átt.  Ég hlustaði ekki og kenndi öðrum um allt.  Var svo blindur á þann þrönga veg sem ég hafði valið mér.  Sá enga sök hjá sjálfum mér.  Allir voru svo vondir við mig.

Þakka þér atvinnuleysi fyrir að bæta líf mitt.  Ég er betri maður fyrir vikið þrátt fyrir að ég óski engum að vera lengi án vinnu.

Formannskosning

„Hvað ert þú að gera núna?“ er stöðluð spurning sem ég fæ þegar ég rekst á gamla vinnufélaga eða kunningja.  Ég er með nokkur svör á lager: „Mæli göturnar“, „Á milli starfa“, „Ætla að klára námið“.

Segi sjaldnast að ég sé einn af þeim langtímaatvinnulausu sem Guðbjartur velferðarráðherra ætlar að sópa undir teppi á næsta kosningaári með loforðaáætlun um 2.200 ný störf handa okkur vesalingunum sem enginn hefur viljað ráða til starfa nú þegar.

Ný störf eru ekki göldruð fram úr loftinu með töfrasprota.  Guðbjartur er hinsvegar í baráttu um formannsembætti.  Verður að gera eitthvað til að sigra Árna Pál.  Samt svolítið seint í rassinn gripið þegar við erum að fara að falla í faðm bæjarfélaganna.

En hvað um það.  Má víst ekki vera of neikvæður.  Auðvitað ber að fagna öllu framtaki til að virkja okkur upp úr sófanum.

Jón og Séra Jón

Löggan stormaði inn í spilavíti og handtók einhverja gaura fyrir að græða á fjárhættuspilum.  Miðað við fréttaæsing sjónvarpsstöðvanna mætti halda að þarna hefðu verið á ferð stórhættulegir ofbeldismenn; nauðgarar eða barnaníðingar.

Leiðréttu mig ef ég fer með fleipur, en eru spilakassar á vegum góðgerðarsamtaka og háskóla ekki fjárhættuspil?  Eru happdrætti og skafmiðar ekki fjárhættuspil?  Er Lottó ekki fjárhættuspil?  Er bingó ekki fjárhættuspil.

Hérna er einfalt skattalagabrot á ferðinni.  Þeir gáfu ekki upp tekjur sínar til skatts vegna þess að ríkið er svo tvöfalt í roðinu að aðeins sumir mega brjóta lögin undir yfirskyni góðgerðarstarfssemi.  Þar af leiðandi fer pókerinn bara í felur.