Frelsið

Sjálfstæðismenn virðast telja að frjálslyndi felist í því að fara frjálslega með peninga annars fólks.  Gefa sig út fyrir frjálslyndi sem stenst enga skoðun því þeir heimta að sitja einir að nýtingu fiskimiða landsins og auðnum sem af þeim hlýst.

Fyrir hverjar kosningar lofar flokkurinn að losa um einokun ríkissins á sölu áfengis til þess að ganga í augun á kaupmönnum og okkur hinum sem nennum ekki lengur að greiða handlegg fyrir smá brjóstbirtu.  Svo gleymist loforðið eða er látið deyja inn í nefnd.

Á pappír birtist íhaldið sem frjálslyndasti flokkur landsins.  Lengra nær það ekki. Sjallar eru flöskuháls á frelsi almennings rétt eins og hinir þrír hlutar fjórflokksins.  Stjórnmálamenn á Íslandi virðast telja sitt helsta hlutverk vera að þvælast fyrir framfararmálum þjóðarinnar.

Dúlla 1999-2012

Hvíl í friði

Dúlla

Fædd 8. febrúar 1999

Dáin 29. október 2012

Mamma valdi þetta litla norsk-persneska skott fyrir rúmu þrettán og hálfu ári síðan.  Grár hnoðri sem kurraði í stað þess að mjálma.  Urðum fljótt góðir vinir.  Sérstaklega elskaði hún ístruna á mér hvar hún dvaldi löngum stundum malandi og fékk sitt klapp.

Svo flutti mamma en mátti ekki hafa kisu með sér.  Dúlla varð eftir í minni umsjón en fékk vikulegar heimsóknir frá aðaleigandanum sem tróð í hana pillu svo hún yrði ekki kettlingafull.  Dúlla mátti þakka fyrir að sleppa lifandi úr vistinni hjá mér.  Gat varla hugsað um sjálfan mig á þessum tíma.

Hún var bitinn af einhverjum nauðgandi fress og fékk eitrun. Var orðin hálf lömuð þegar mamma tók aftur við henni og læknaði til heilsu.  Varð „inniköttur“ eftir það en fór samt í göngutúra með húsfreyju sinni um bakgarðinn á veðursælum dögum.  Flutti sem betur fer ekki aftur til mín.

En krabbinn lævís og lipur læddi sér inn í líf Dúllu sem dvaldi sátt hjá mömmu sinni. Kom fyrst fram í tannholdi en hvarf eftir hreinsun. Svo í kringum mjólkurkirtla og virðist þaðan hafa dreift sér inn á við hægt og bítandi.

Rödd míns elskulega afa og nafna glymur í hausnum á mér: „þetta er bara köttur“.  Við deildum ekki hrifningu minni á köttum.  Samt var afi einn yndislegasti maður sem ég hef kynnst.  Hef hugsað til hans síðustu daga meðan ég fylgdist með kisu versna með hverjum deginum.

Dúlla lá á sófaarminum í gærkvöldi og sneri upp að veggnum eins og svo oft áður síðustu vikur.  Um tíma leit hún til hliðar og horfði stíft í augu mér.  Þá vissi ég að hún væri að kveðja.  Augun voru svo dökk og sorgmædd.  Ég klappaði henni í síðasta skipti. Hafði sætt mig við að hún myndi ekki snúa aftur frá dýraspítalanum.

Merkilegt hve miklum tökum gæludýr nær á hjarta manns.  Hvað þá eftir tæp fjórtán ára kynni.  Þrátt fyrir að við bjuggum ekki alltaf undir sama þaki, þá tók hún mér ætíð fagnandi blessunin.  Settist við hlið mér og „leyfði“ mér að klappa sér.  Var þó hætt að skríða upp á ístruna síðustu árin.

Hvíl í friði litla loðdýr!  Þú varst stórmerkilegur persónuleiki.

Frjálslyndisfasistinn

Á Íslandi er ekki nógu frjálslyndur flokkur handa mér.  Frjálslyndi flokkurinn heitni var langt frá því nógu frjálslyndur fyrir mig.  Gekk aðallega út á kvótakerfið.  Á Íslandi eru bara íhaldsflokkar til hægri og vinstri. Enginn sem vill auka frelsi þegnanna.

Ég vil hlýta reglum en ekki greiða fyrir samviskubit annarra með ofursköttum á áfengi, tóbak og sykur. Fólk drekkur, reykir og fær sér sælgæti við tækifæri.  Hvers vegna á að refsa því fyrir að hafa stöku sinnum nammidaga?

Félagi minn í menntaskóla kallaði mig „frjálslyndisfasista“.  Hef ekkert breyst síðan þá.  Kaus krata um tíma samkvæmt vana en fann mig aldrei fyllilega þar.  Hef bara orðið frjálslyndari með árunum ef eitthvað er.  Það er sennilega til eitthvað við slíkum sjúkdómi.

Skil ekki hvers vegna heimtuð eru himinhá áfengisgjöld sem eru svo EKKI notuð til forvarna eða meðferða.  Þau renna bara inn í ofmannað ríkisbáknið. Þess vegna skrifa ég ekki undir bænaskjalið hjá SÁÁ.  Vil ekki fá enn einn skattinn ofan á rándýran bjórsopann sem ég sárasjaldan leyfi mér að þamba.

Skil þó vel að verstu áfengissjúklingarnir þurfi hjálp rétt eins og börn alkahólista.  Finnst samt eins og neyð þeirra sé notuð til að betla meiri tekjur handa SÁÁ.