Hvar eru allar dúfurnar?

Hvar eru allar dúfurnar?  Hef ekki séð neina svo árum skiptir.  Hafa borgaryfirvöld eitrað svo duglega fyrir þeim að þær sjást ekki lengur á torgum og strætum?  Hvers konar hreintrúarstefna er þetta eiginlega!

Þegar ég var gutti þá var varla þverfótað fyrir dúfum.  Bróðir minn hélt meira að segja nokkrar í rammgerðum kofa sem pabbi hafði smíðað út í garði. Strákar á hans reki veiddu dúfur út um allan bæ.  Mikill metnaður var í ræktuninni.  Sumar voru merkilegri en aðrar.

Skil ekki svona hreinstefnu. Dúfur eru ekki fljúgandi rottur eins og sumir telja.  Mávarnir eru nær þeirri skilgreiningu.  Öskrandi allan daginn og drullandi á hausinn á fólki.  Reykjavík telst ekki til evrópskra borga án dúfna.

Leggjum Alþingi niður!

Baldur McQueen segir raunar allt sem ég vil segja: http://www.dv.is/blogg/baldur-mcqueen/2012/10/23/aumir-thingmenn-heimta/

Atkvæði þeirra sem mæta ekki á kjörstað skipta engu máli.  Aðeins þeir sem hafa tapað, vilja túlka þögul atkvæði þeirra út og suður.

Nú tekur við málþóf og Alþingi sannar enn betur fyrir þjóðinni að við neyðumst til að koma okkur upp betra fyrirkomulagi en 63 keyptum fulltrúum yfirstéttarinnar.

Vorhreingerning á Alþingi

Í lengri tíma þóttist ég vera krati. Þeir eru ekki lengur til. Síst af öllu í Samfylkingunni.  Þrátt fyrir það hef ég kosið þá samsuðu í veikri von um að bófaflokkur Bjarna Ben komist ekki aftur að stjórn landsins og sökkvi því endanlega með græðgi sinni.

Af tvennu illu og allt það.  Næst ætla ég þó að leyfa mér að kjósa eitthvert af nýju framboðunum.  Sérstaklega eitthvert sem er ekki útibú frá hinum fjórum gömlu og spilltu.  Það verða engar breytingar til batnaðar ef fjórflokkurinn fær endurnýjað umboð í næstu kosningum.

Landsmálin þurfa á einhvers konar Besta flokki að halda.  Einstaklingum sem eru ekki flokksbundnir margar kynslóðir aftur í tímann.  Fólki sem er ekki útatað í aur og drullu spillingar og mútugreiðsla fyrri tíma.  Hóp kvenna og karla sem reka fleyg í fjórskiptingu þingsins og neyða liðið þar til að taka upp betri vinnubrögð.