Búfénaður

Fyrir ekki svo löngu síðan þótti það eðlilegt að karlmenn níddust á dýrum sér til fróunar.  Að kippa í kvikindið (gleðja sjálfan sig í einrúmi) hefur greinilega ekki þótt nógu virðingarvert.  Varð að stinga vininum í kjöt.

Vegna þessa máttu kýr og kindur þola það að vera nauðgað reglulega af körlunum á bænum.  Kannski vegna þess líta sumir karlmenn enn á konur sem búfénað sem má fara með að vild.

Hlæjum að feita gaurnum!

Sífellt fjör þegar ég fer á milli staða með minn offituskrokk.  Fólk er ekki vant að sjá tæplega hundrað og fjörtíu kílóa flykki mjakast á milli staða.  Hvað þá rösklega eins og ég geri núorðið.

Aðallega ungar konur á þrítugsaldri benda hlæjandi á mig úr bílum sem aka framhjá.  Í gær öskruðu þó fjórir tíu ára gaurar óatkvæðisorðum á eftir mér. Einn af þeim elti mig þegar ég sýndi engin viðbrögð og reyndi að fá mig til að slást.  Ég hugleiddi um stund að senda hann í götuna.

Fólk virðist ekki fatta að hrætt dýr bítur frá sér.  Ég er friðsemdarmaður að eðlisfari en get orðið reiður þegar mér finnst gengið á minn hlut. Ræð stundum ekki við bræðina sem blossar skyndilega upp.

Ég ætti kannski að láta það eftir mér að leggja hnefann í andlitið á fólki sem telur það til réttinda sinna að gera grín að mér vegna offitu minnar.  Af hverju ætti ég að sætta mig við svona viðmót?