Sama, gamla klíkan

Finnst að fólk innan Þjóðkirkjunnar ætti að bíða aðeins með að fagna kjöri Sr. Agnesar.  Vissulega er hún kona og sú fyrsta til að verða biskup, en hún er enginn boðberi byltinga eða aukins frjálslyndis innan kirkjunnar.

Til að mynda hikstar hún ætíð þegar einhver spyr hana hvort hún muni taka þátt í gleðigöngu samkynhneigðra.  Bullar bara að hún sé utan af landi og hafi þess vegna aldrei tekið þátt auk þess sem henni sé illa við fjölmennar samkomur.  Af hverju svarar hún ekki bara að henni sé illa við samkynhneigt fólk og myndi ekki gifta þau samvisku sinnar vegna (eins og hún hefur rétt á skv. lögum).

Nei, hér er bara á ferð kvenkyns útgáfan af svartstökkunum sem hafa stjórnað þessu úrelta apparati alla tíð.  Nægir að nefna að hún hefur verið fulltrúi tveggja síðustu biskupa í siðanefnd Prestafélagsins síðastliðin 17 ár; eða síðan 1995 þegar Ólafur Skúlason var enn í embætti.

Sé ekki eftir að hafa sagt mig úr Þjóðkirkjunni.  Og efast um að við villuráfandi sauðirnir munum snúa aftur í fjárhúsið vegna þess eins að nýi hirðirinn er kona.  Til þess þarf miklu meira.  Eiginlega að „Jón pönkari þjóni fyrir altari“.

Litla-Kína

Spurning hvort að það sé ekki málið að skella sér í kínverskunám?  Huang Nubo er að ná því að smygla sér inn bakdyramegin inn á Grímsstaði.  Undirritaðir voru fullt af samstarfssamningum við hundrað manna sendinefnd forsætisráðherra Kína.

Og ég var strandaglópur niður í miðbæ vegna þess að Hverfisgatan var lokuð síðdegis á laugardag því greyið Kínverjarnir meika ekki mótmæli.  Er ekki viss um að ég meiki kínverskan yfirgang á Íslandi í framtíðinni.

Fésbókarhittingur

Frábært kvöld að baki með sjaldséðum vinum.  Fésbókin er undratæki þegar undirbúa skal hitting.  Tók bara níu daga frá hugmynd að veruleika.  Borgar sig greinilega að stofna hóp á facebook.  Verður vonandi til þess að fjölga hittingunum í framtíðinni.  Takk fyrir frumkvæðið Bjarni!