Vestræn samviska

Dæmdu mig ef þú vilt, en ég er sammála Guðmundi Franklín Jónssyni í Hægri Grænum hvað varðar þróunaraðstoð Íslands.  Til hvers að eyða tæpum sex milljörðum á ári í slíkt dekur meðan við erum að loka spítölum hérlendis og skera heilbrigðisþjónustuna niður inn að beini.

Skrifa bara eins og Guðmundur í viðtali á Útvarpi Sögu : Hjálpum okkur fyrst áður en við förum að hjálpa öðrum.  Fyrir utan það er þróunaraðstoð oftast bara samviskubætur til afrískra stríðsherra sem svo nota hana til þess að kaupa vestrænar eftirlíkingar af rússneskum árásarrifflum (AK-47).

Sjúkt samfélag

Hvað er eiginlega að hjá hjúkrunarfræðingum sem vilja skrifa upp á getnaðarvarnarpillur fyrir ellefu ára stúlkur?  HALLÓ!  Að betra sé að þær hafi einhverja vörn en enga.  Hvað um ábyrgð strákanna?

Börn eiga ekkert að vera stunda kynlíf fyrir það fyrsta.  Eiga að vera að leika sér eins og önnur börn.  Hérna er um stílhreint uppeldismál að ræða.  Foreldrar eru ábyrgir fyrir uppeldi og hegðun barna sinna.  Börnin apa það eftir sem fyrir þeim er haft.

Einn af mörgum bannráðherrum

Skil eiginlega ekki hvernig Innanríkisráðherra ætlar að fara að því að hamla spilafíklum frá því að spila fjárhættuspil á netinu.  Ætlar hann að loka fyrir netaðgang landsins?  Eigum við þá ekki bara að ganga inn í Kínverska Alþýðulýðveldið í kjölfarið.

Frábær þessi boðuðu bönn og boð kommúnista á ráðherrastólum.  Svo getur Ömmi ekki einu sinni veitt lögreglunni sambærilegar valdheimildir og tíðkast hjá frændþjóðum okkar á hinum Norðurlöndunum.  Mega ekki einu sinni ganga með skammbyssur sér til varnar gegn þungvopnuðum glæpaskríl.

Má halda að innanríkisráðherra sé kominn undir járnhæl bifhjólasamtakanna.  Vill núna ekkert gera til að hefta útbreiðslu þeirra þrátt fyrir digurbarkalegar hótanir gegn þeim fyrir ekki svo löngu.