Fyndið að fylgjast með glæpalýðnum niður á Alþingi heimta bann við öðrum glæpasamtökum vegna búninga þeirra. Hvernig væri að líta sér nær!
Evrópusambandið?
Ég sem var að gæla við að styðja inngöngu Íslands inn í Evrópusambandið, en var ekki alveg ákveðinn, hef loks tekið ákvörðun. Ég segi NEI!
Samkvæmt samningskröfum íslenskra stjórnvalda ætla þau að halda til streitu einkasöluleyfi ÁTVR á áfengi. Við sem héldum að innganga inn í ESB þýddi meira verslunarfrelsi getum gleymt því. Ekkert mun breytast. Sami kommúnisminn mun ríkja áfram.
Sem þýðir einfaldlega að ESB verður fellt þegar það kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Slæmur fyrirboði
Hef verið að dreyma sama drauminn síðustu daga. Sömu aðstæður og sama fólk. Aftur og aftur. Kann ekki við það. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Eitthvað er í vændum. Sennilega slæmt.