Lögreglan í landinu

Rosalega verð ég alltaf vonlítill þegar ég sé karldurginn sem er yfir kynferðisbrotadeild lögreglunnar tjá sig önugur við fjölmiðla.  Sami gaur og fékk áminningu fyrir að gaspra að konur sem klæddu sig glannalega væru að bjóða upp á vandræði.

Framsækinn lögreglustjóri myndi stugga þessari risaeðlu til hliðar og ráða kvenskörung í starfið.  Hvaða rugl er þetta, að láta miðaldra karl sem telur að konur kalli yfir sig ofbeldi með klæðnaði og hegðun, stjórna þessum viðkvæma málaflokki?

Ætli að það tíðkist enn að yfirmenn hjá lögreglunni verði að bera flokksskírteini frá Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokknum upp á vasann?  Frægt er orðið að pabbi borgarstjóra fékk aldrei stöðuhækkun vegna þess að hann kaus Alþýðubandalagið.

Enn eitt dæmið um að við virðumst ekki ætla að komast upp úr gömlu hjólförunum sem við vorum að hjakka í fyrir hrun.  Ekkert virðist ætla að færast fram á við.  Ekki einu sinni lögreglan í landinu.

Farið út af sporinu

Fékk skít og skammir framan í mig í síðustu heimsókn minni til hjúkku og læknis.  Hótuðu mér með insúlíni ef ég tæki mig ekki virkilega á næstu tvo mánuði.  Hjúkkan spurði mig hvað ég ætlaði að gera til að bæta ástandið og ég svaraði auðvitað „sennilega ekkert“.  Játaði einnig að hata nálar svo insúlín kæmi ekki heldur til greina.

Vissulega hef ég misst mig síðustu misseri.  Borðað allt of mikið af sælgæti.  Ég á reyndar að láta það alveg í friði.  Kemur mér í koll núna.  Helvítis nartþörfin lætur á sér bera þegar skyggja tekur.  Get vel sleppt sætindunum.  En hvað gerist ef það dugir ekki til?

Sleikfés

Mér skilst að Samfés heiti í raun Sleikfés.  Að þar gangi allt út á að slumma sem flesta og safna símanúmerum.  Come on!  Þið eruð krakkar!  Slakið aðeins á að verða fullorðin.  Verðið dauð í sálinni fyrir tvítugt með þessu áframhaldi.

Minnir að í fyrra hafi umsjónaraðilar misst hökuna niður í gólf því stúlkurnar voru svo léttklæddar að það hálfa hefði verið nóg.  Múgsefjun netsins sækir stöðugt harðar á viðkvæmar gagnfræðaskólasálir.  Sjálfstæð hugsun er illa séð.  Krakkar eiga að vera vitlausir.  það er krafa dagsins.