Saltkjöt og baunir…áfall

Aldrei þessu vant át ég ekki yfir mig af rjómabollum og kjötbollum.  Allt er gott í hófi.  Nenni líka ekki að sitja á könnunni í alla nótt.  Saltkjöti og baunasúpu sleppi ég alveg.  Get rétt eins sturtað iðnaðarsaltinu beint ofan í mig úr pokanum og svo pantað sjúkrabíl.

Ætti að kalla Sprengidag Háþrýstingsdag.  Sennilega næst besta mætingin á bráðamóttökuna yfir árið þennan dag fyrir utan Jólin.  Fólk passar sig ekki og skóflar í sig söltuðu kjöti og saltaðri súpu í hádeginu og líka um kvöldið.  Og skilur svo ekkert í vanlíðaninni.

Þá er ég nú gingeyptari fyrir flatböku frá Dominos.  Það er Megavika!

Dýr er dropinn

Bjánarnir í Íran ræskja sig og forstjóri eins olíufélaganna sprettur strax fram á netinu og boðar mögulega hækkun á eldsneyti.  Allt skal notað til að skara fleiri krónur að kassanum.  Jafnvel þó að megnið af okkar bensíni komi frá Rússlandi.

Væri ekki ráð að breyta þessum sólarhringssjoppum aftur í bensínstöðvar með almennilegri þjónustu og vöruúrvali.  Myndi kannski minnka rekstrarkostnaðinn og stuðla að lægra verði á lítranum.

Fólk fattar þetta ekki og hangir næturlangt á þessum stöðvum með kúkinn í buxunum í stað þess að drulla sér í bælið.  Aldrei lét ég sjá mig á slíkum búllum eftir vinnu.  Ekki nema að ég fengi borgað fyrir það.

Auga fyrir auga

Dönsk stemning í kassanum í kvöld.  Fyrst Borgen og svo myndin Hævnen sem hefur svipaðan boðskap og gamli kántrýsmellurinn hans Kenny Rogcrs, Coward of the County.  Var reyndar gerð mynd eftir laginu sem fór ekkert svo hátt.

Tveir vinir losna undan einelti með því að beita kvalara sinn ofbeldi.  Faðir annars þeirra reynir að kenna þeim að sýna í staðinn hinn vangann.  Þar til hann fær sjálfur nóg og svarar fyrir sig og flóttafólk í Afríku þar sem hann starfar sem læknir.

Hið fornkveðna sannar sig enn og aftur : „Sometimes you gotta fight to be a man“  Annars er vaðið yfir mann ævilangt.  Hver vill það?