Diskarnir eru ekki skotheldir

Ég man að þegar geisladiskar tóku að ryðja sér til rúms þá héldu framleiðendur því fram að nú þyrfti ekki lengur að hafa áhyggjur af partýrispum eins og á hljómplötum.  Rosalega höfðu þeir rangt fyrir sér.

Geisladiskar eru nefnilega misjafnir að gæðum.  Og þeir bestu eru ekki notaðir undir fjöldaframleidda tónlist eða kvikmyndir.  Hef komist að því eftir flutningana úr rottuholunni fyrir tæpum tveimur árum.

Þar passaði ég ekki nógu vel upp á diskana og leyfði þeim að liggja óvörðum hingað og þangað.  Árangurinn er sá að annar hver diskur sem ég á er varla boðlegur í geislaspilara eða DVD.  Hiksta bara endalaust.

Passaðu upp á diskana þína!

Eru fjögur kjörtímabil ekki nóg?

Skil ekkert í þessum 37 þúsund sálum sem vilja fá Óla grís áfram sem forseta.  Til hvers.  Svo hann geti haldið áfram að neita Icesave?  Sú vitleysa er búin og kann ég honum góðar þakkir fyrir.  Er ekki þar með sagt að ég vilji hafa hann lengur á Bessastöðum.

Best væri að leggja embættið niður og tryggja um leið rétt fólksins til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu í umdeildum málum.  Þurfum engan forseta.  Bara leifar af gömlu fyrirkomulagi þar sem ríkisstjóri var staðgengill konungs.  Ríkisstjóri varð síðar að forseta.

Hló mig reyndar máttlausan við að lesa platfrétt þess efnis að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlaði sér forsetaembættið en vildi samt halda Dorrit.

Íslenskt þjóðerni

Var varla kjaftur á Dominos þegar ég sótti slydduna mína.  Sennilega flestir heima hjá sér að berjast við meltingartruflanir og of háan blóðþrýsting.  I told you so!

Eins og með þorraviðbjóðinn þá fæ ég stundum á tilfinninguna að fólk þykist elska saltkjöt af ótta við álit annarra.  Rétt eins og það sé óþjóðlegt að neita sér um óþverrann sem vesalingarnir fyrr á öldum neyddust til að setja ofan í sig.

Mér er andskotans sama.  Þjóðhollusta snýst um að elska land okkar og tungu.  Ekki skemmdar matvörur frá fyrri tíð.  Þessu skylt er árátta íslenskra karla að hrúgast upp á fjöll og fyrnindi til að murka lífið úr litlum fuglum og sætum hreindýrum.