Almyrkvinn

Staulaðist út 17:48 til að upplifa nótt að degi. Flott sjónarspil í mínútu. Fuglar misstu sig í þögninni og feita köngulóin í þakskegginu fór að sofa. Nágrannar úti við. Sumir með dróna langt fyrir ofan í von um að ná einhverju á filmu.

Fullt af amerískum apaheilum flugu hingað og óku vestur á land í von um eitthvað í gegnum skýin. Ferðaþjónustan makaði krókinn rétt eins og Stjörnu – Sævar með innflutningi og sölu á pappírsgleraugum frá Kína sem bolurinn keypti í gríð og erg en gat svo ekki notað í rigningunni. Er nokkuð viss að Sævar hafi rakað inn fimmhundruðkalli á hverju eintaki sem hann seldi á sexhundruðkall.

Á leiðinni heim kom ég við í verslun og engu líkara var en að heimsendir væri í nánd. Fólk var að fríka út að kaupa tóma vitleysu eins og hauslausar hænur. Fullar kerrur af mat sem svo bara skemmist.

La Bamba og Hárið

Árgangurinn okkar í Snælandsskóla fór saman á La Bamba í Stjörnubíó í miðri viku árið 1987. Frábær en um leið örlítið sorgleg og söguleg mynd með góðri tónlist. Nokkir áhorfendur gátu ekki á sér setið og fóru að dansa í miðri sýningu. Lái þeim hver sem vill.

Allt í einu eru ljósin kveikt og myndin skín ekki lengur á hvíta tjaldið. Inn stormar tugur lögregluþjóna íbyggnir á svip. Hvernig dirfist þið að dansa! Lá við að fólk væri snúið niður og handtekið en sýningin fékk að halda áfram undir loforði okkar að dansa ekki framar.

Þetta var fyrir tima farsíma svo að starfsfólkið hlýtur að hafa kallað Gestapo á staðinn til að hafa stjórn á skrílnum sem vogaði sér að standa upp úr sætum og dilla sér í takt við tónrásina. Allt þetta fólk sem dansaði var á þrítugsaldri og engir stjórnlausir og drukknir unglingar.

Við vinirnir fórum á Hárið 1994. Á þá frægu sýningu þegar vesalings Hilmir Snær leið út af í flogakasti og allir héldu að hann væri að grínast þar til einhver á sviðinu kallar inn í salinn hvort einhver læknir sé í salnum. Tvær konur gefa sig fram sem hjúkrunarfræðingar og fara að sinna aðalleikaranum þar til sjúkrabíllinn rennur í hlað.

Salurinn fékk svo aðra sýningu í sárabætur þar sem Hilmir Snær í hlutverki Berger hrópar til okkar „láttu líða yfir þig Berger!“

Annars

Annars var gleðigangan mjög glæsileg í ár. Dröslaðist á hopphjóli að Domus Medica og skakklappaðist svo þaðan að Hallgrímskirkju hvar atriðin voru að raða sér upp.

Endasendist svo niður á Austurvöll til að fylgjast með göngunni liðast niður Bankastræti. Kom mér svo burt úr bænum með fyrstu fjórtán frá Stjórnarráðinu eftir að Palli og Pelikaninn létu sjá sig. Var fljót að fyllast. Fékk sæti fremst og gat því smogist út þegar þar að kom.