Paletísk gleðiganga

Í fyrsta sinn í fjögur eða fimm ár dröslaðist ég niður í bæ til að fylgjast með gleðigöngunni. Til að sýna stuðning og gleðjast með öðrum viðstöddum.

Sé þá fánahyllingu Palestínu innan um atriðin hrópandi óatkvæðisorðum að Ísrael. Hvernig á þetta heima innan um íslenska gleðigöngu til stuðnings samkynhneigðum hérlendis?

Veit ekki betur en að samkynhneigðir séu litnir illu auga í Palestínu en séu velkomnir í Ísrael. Skil ekki þessa fánahyllingu. Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér.

Dótabyssur fyrir norðan

Engin sérsveit handtók nokkurn fyrir vopnaburð í Eyjum þrátt fyrir að annar hver maður er þar með leikfangabyssu keypta í dalnum. Hinsvegar var maður handtekinn með dálk og nokkrir gaurar fyrir að aka um bæinn með byssur úr dótabúð á Akureyri.

Getur einhver sagt lögreglunni fyrir norðan að allar leikfangabyssur bera rauðan hring fremst í hlaupinu til aðgreiningar. Þetta veit lögreglan í Eyjum af fenginni reynslu.

Eru engin samskipti milli embætta? Eða var sérsveitin í æfingaferð fyrir norðan!