Skárra efni fyrir aurinn!

Alltaf sama sorgarlesningin blessaður álagningarseðillinn.  Skil ekkert í mér að skoða svona leiðindi.  Greiði glaður fleiri og betri rými fyrir aldraða en sé eftir hverri krónu sem fer í útvarpsgjaldið.

Enda skila þeir fjármunir sér alls ekki allir upp í Efstaleiti til Páls útvarpsstjóra. Ríkið hirðir drjúgan skerf af því í annað sukk. Restinni er eytt í drasl eins og Andra á flandri og fólkinu seld sú lygi að maðurinn sé fyndinn.  Er bara ekkert annað í boði.

Ekki er Flikk flakkið hennar Gunnu Dísar skárra.  Og morgunsamvinna þeirra á Rás 2 orðin ansi þreytt.  Farið nú að hætta þessu!  Gæðamunurinn hefur sést svo vel þessa vikuna meðan vinirnir Helga Braga og Steinn Ármann hafa leyst þau af hólmi.

Ég heimta skárri dagskrá fyrir aurinn minn!

2 athugasemdir á “Skárra efni fyrir aurinn!

  1. Hvaða,hvaða? Hlusta nú ekki mikið á útvarpið en Sjónvarpið er ekki svo slæmt. Kannski merki um að maður er orðinn gamall :)

    1. Við erum að eldast. ;-) Kannski er verið að spara fyrir HD og hinni rásinni sem mun bara sýna íþróttir og fer í gang 2014? Þá munu margir hætta að röfla yfir útvarpsgjaldinu. Þó ekki ég.

Skildu eftir svar við Edvard Hætta við svar