Nennti ekki niður í bæ að glápa á gleðigönguna. Núna eru hérlendir samkynhneigðir komnir með flest ef ekki öll sambærileg réttindi á við gagnkynhneigða. Er þá ekki sigurinn unninn og botninn dottinn úr göngunni?
Nei, nú skal barist áfram fyrir mannréttindum transfólks. Hef lengi, og kannski ranglega, talið mig víðsýnan og frjálslyndan í hugsun og viðurkenni fúslega að ég skil ekki alveg pælinguna á bak við kynskipti.
Næ að einstaklingur er fæddur í líkama gagnstæðs kyns. Má ekki hið sama segja um homma og lesbíur? Nei, það er víst ekki. Transfólk þarf á kynskiptum að halda til að verða heilt á sálinni. Eða svo segja geðlæknar.
Hvað veit ég!