Ríkið eða Vínbúðin er kölluð Mjólkurbúðin af fólki eldra en ég sem man vel eftir því þegar ríkið rak mjólkurbúðir. Það rak einnig raftækjabúðir og bílasalar heyrðu undir ríkið þegar kom að innflutningi.
Gjaldeyrishöft ríktu. Allur innflutningur var háður duttlungum þeirra sem fóru með stjórn landsins. Flokksskírteini komu mönnum þó inn fyrir dyragaflinn hjá yfirvöldum. Sérstaklega þau bláu og grænu.
Enn starfar ríkiseinkasala á áfengi þrátt fyrir að allar hinar sölurnar séu horfnar. Risaeðla sem selur ofurskattaðar veigar til þyrstra Íslendinga. Sama hver situr við stjórn landsins.
Bindindisfólk og uppþurrkaðir alkar virðast alltaf hafa yfirhöndina. Ekkert breytist til batnaðar þeim sem eiga ekki í vandræðum með vínið. Við verðum bara að sætta okkur við rassríðingar í hvert skipti sem við rekum nefin inn í Vínbúð … á vegum ríkissins.