Fornaldarhugsun

Neðst á síðu 7 í smáauglýsingum Fréttablaðsins í gær birtist eftirfarandi texti á rússnesku:

„Ef kristið fólk þegir þá talar Biblían…

Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né
kynvillingar, þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa.“

Á biblian.is hljóðar textinn svona.  Sennilega munurinn á gömlu og nýju þýðingunni:

9Villist ekki! Enginn sem er saurlífur, dýrkar falsguði eða lifir í hórdómi, enginn karlmaður sem lætur nota sig eða notar aðra til ólifnaðar, 10enginn þjófur eða fégráðugur, vínsvallari, rógberi eða fjársvikari fær að erfa Guðs ríki.“

Tók sjálfur ekki eftir þessu fyrr en þras tók að birtast á netinu.  Fletti svo upp í hinni helgu bók á netinu til að staðfesta nöldrið.  Bý nefnilega ekki sjálfur svo vel að eiga þá rykföllnu skruddu sitjandi á bókahillunni.

Klerkur rússneska safnaðarins vill engu svara.  Gildir einu.  Þvílíkur dónaskapur að birta slíkan texta á sjálfan gleðigöngudaginn.  Samt ekki við Fréttablaðið að sakast.  Textinn er á rússnesku en með tilvísun í Fyrra Korintubréf.  Ekki allir sem fatta að fletta því upp.

Ekki nóg með að þessir rússnesku réttrúnaðarklerkar séu að níðast á pönksveitinni Pussy Riot í sínu heimalandi, heldur vilja þeir fara að kúga okkur Íslendinga til hlýðni.  Hunskastu heim pokaprestur.  Hefur ekkert hingað að gera. Farðu og sleiktu rassgatið á Pútín!

Færðu inn athugasemd