Megavikan er hættuleg. Flaug á hausinn með pizzakassa í hendinni. Hélt ég myndi ekki komast aftur á fætur. Kona á jeppa kallaði til mín hvort ekki væri allt í lagi. Mér leið eins og fávita. Feiti gaurinn sem getur ekki gert tvennt í einu; gengið og haldið á kassa.
Mér var nær að falla fyrir svo kolvetnisríkum mat. Skamm, skamm! Einhver er að segja mér að bæta mataræðið og sleppa hveitinu. Og grenna mig. Ekkert grín að lenda í götunni með alla þessa yfirvigt. Hnéin eru stokkbólgin og mig verkjar í allan skrokkinn. Má víst þakka fyrir að ekki fór verr.