Á laugardaginn fór ég á Spot og þurfti því að klæðast aftur brókunum sem ég keypti í lok apríl fyrir síðasta djamm. Þá pössuðu þær rétt svo utan um minn feita rass. Núna gat ég komið einum og hálfum þumli milli mittis og buxnastrengs og varð að nota belti.
Þess vegna hljóta allar göngurnar og hjólaferðirnar í sumar hafa skilað sér. Hef líka tekið mataræðið aðeins í gegn en ekki nóg. Borða allt of mikið á kvöldin. Væri annars töluvert grennri. Helvítis nartþörfin fyrir svefninn.
Vonandi hefur langtímasykurinn lækkað samhliða. Annars verð ég sendur á Reykjalund og svo í hjáveituaðgerð. Myndi sætta mig við dvölina en ekki aðgerðina. Slíkt er fyrir fólk sem getur ekki grennst sökum hægrar brennslu. Ég hef bara verið latur.
Ég get þetta alveg. Þurfti bara smá tíma til að átta mig. Núna er ég kominn af stað. Þolið komið aftur og allt í gangi. Brennslan á fullt. Þarf bara að auka hreyfinguna enn frekar og borða enn betur.
Er kominn á þann stall að una ekki innandyra í vondum veðrum. Verð að fara út til að hreyfa mig óháð rigningu og roki. Fæ annars kofaveiki og líður illa. Blóðið verður að komast á hreyfingu í mínum digra skrokki.