Get ekki komist yfir þá staðreynd að yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar hefur gerst sekur á prenti að konur sem klæði sig glyðrulega kalli yfir sig naugðun. Þessi maður er enn yfirmaður deildarinnar. Hann var ekki færður til í starfi.
Sem sýnir bara og sannar að kynferðisglæpir eru ekki teknir alvarlega innan kerfissins. Meðan svona þurs fær að ríkja yfir málaflokknum er útilokað að nokkur kona nái fram réttlæti sínu gegn þeim sem nauðgaði henni. Gerandinn mun oftar en ekki sleppa með sinn glæp. Og konunni kennt um allt fyrir að vera svona girnileg.
Allt of margir misvitrir flokkshestar eru yfirmenn í of fámennri lögreglu landssins. Kominn tími til að hreinsa þar út eins og í embættismannakerfinu. Gera duglega hausthreingerningu. Flokksskírteini á ekki að vera eina skilyrðið til að fá stjórnendastöðu.