Fjölmenning er gæluverkefni íslenskra kvenna á vinstri vængnum. Þær trúa því að allir kynþættir, þjóðir og trúarbrögð geti soðist saman í sömu súpu. Í krafti þeirrar trúar berjast þær fyrir karlkyns, arabíska flóttamenn sem vilja setjast hér að fyrst þeir komust ekki alla leið til Bandaríkjanna.
Hvað með arabískar konur sem komust ekki alla leið til fyrirheitna landssins? Og börnin þeirra. Af hverju eru þau ekki í Keflavík að Fitjum að sækja um pólítískt hæli? Kannski vegna þess að karlpungarnir þar skildu þær og börnin eftir í súpunni til að bjarga eigin skinni.
Ég varð hugsi þegar einn af téðum arabískum flóttamönnum lýsti því yfir að hann vildi setjast hér að. Mennta sig og eignast fjölskyldu. Sem sagt lokka einhverja íslenska stelpu inn í múslimskt hjónaband þar sem karlinn ræður öllu. Jafnvel lífi hennar og dætra þeirra.
Af hverju erum við að fylla landið af arabískum karlrembum? Var ekki planið að ná fram jafnrétti? Ég skil engan veginn þetta dekur vinstri kvenna við karlkyns, arabíska flóttamenn. Eru þær kannski að vonast eftir mannsefni?