„Ertu hommi“ spurði mig maður. „Það veit ég ekki“ sagði ég og svaraði víst rétt. Veit einhver okkar það fyrirfram án þess að hafa prófað? Hvernig er hægt að svara afdráttarlaust nei eða já?
Sjálfur svaraði ég svona án þess að hugsa. Hef reyndar pælt oft í spurningunni þau skipti sem virkilega myndarlegir og giftir menn hafa reynt við mig niður í bæ á djamminu. Mjúkir menn eins og ég eru víst vinsælir hjá þeim sem búa enn inn í skápnum og vilja prófa.
Hef reyndar verið svolítið upp með mér að samkynhneigðir karlar hafi haft áhuga á mér meðan konur líta ekki við mér sökum offitu. Allri athygli skal fagnað. Skítt að vera ekki á sömu síðu. Annars ætti ég þvílíka möguleika á hösli. Kannski er lausnin að prófa. Svona einu sinni?
Æ, veit það ekki. Kann svo illa við skeggbrodda.