Þunglyndi er stórhættulegur sjúkdómur. Hinir óheppnu þjást af honum upp úr þurru og berjast við hann allt lífið. Hafa ekkert unnið sér til saka til að öðlast viðveru hans. Ólíkt mér sem drakk mig inn í þunglyndi og kvíða.
Fyrir rúmum þremur árum síðan lá ég í sjálfsvorkunn í leiguherbergjum fjölbýlishúss sem áður hýstu þvottavélar og þurrkrými. Deildi salerni með öðrum leigjanda neðar í ganginum. Langaði mest til að deyja en bjó ekki yfir hugrekkinu til að klára dæmið.
Þrennt kom mér til bjargar. Ísland hrundi. Missti vinnuna. Ég hætti að drekka mig í svefn. Komst að því í kjölfarið að kvíðinn og þunglyndið höfðu stafað af drykkjunni. Þannig vaknar maður eftir neyslukvöld. Einn og yfirgefinn í þrá eftir vímu gærkvöldsins. Kvíðinn og þunglyndur yfir að hún náist ekki.
Segi ekki að lífið í dag sé einhver dans á rósum en er þó mun skárra en volæðið áður í ruslahaugnum að Ástúni 12. Besta sem húsfélagið þar gerði var segja mér upp leigusamningnum. Ég þakka þeim heilshugar! Annars hefði ég sennilega náð að tortíma sjálfum mér.
Í kjölfar uppsagnar leigusamningsins réru mamma og frænka mín öllum árum að því að tryggja mér núverandi húsnæði. Get ekki þakkað þeim nægjanlega fyrir. Sjálfur hafði ég ekki rænu á því og hafði planað að kveikja í draslinu mínu og tjalda niður í Fossvogsdal það sumarið. Haustið var óskrifað blað.
Síðan þá hef ég náð aftur talsverðum tengslum við lífið. Kveikt aðeins á perunni. Fattað hvers konar fáviti ég var orðinn. Reynt að skríða að bakkanum úr forinni og ná festu á þurru landi.
Hef reynt að leiðrétta það sem ég gerði fólki í vímunni. Sérstaklega það sem ég skrifaði fólki gegnum netið blindur af hatri út í sjálfan mig. Í huga mér var öll óhamingja mín öðrum að kenna. Á samt mikið verk enn óunnið.
Ekkert er eins gott og að geta horfst aftur í augu við sjálfan sig í speglinum á morgnana. Gat það ekki í mörg ár og horfði helst undan af skömm yfir því sem blasti við mér. Þeirri sorgarmynd.
Segi ekki að ég sé orðinn allra. Ég er enn bölvaður fáviti sem fer í taugarnar á mörgum. Barnlaus ræfill sem kann ekki á börn og þoli varla unglinga. Hrokafullur einstæðingur sem þykist vita allt best. Sumt breytist ekki þrátt fyrir allt.