Í gegnum tíðina hef ég fullyrt svo margt um sjálfan mig án þess að geta staðið fyllilega í báða fætur á bak við orð mín. Eitt af því er að ég sé ekki alkahólisti. Eitthvað sem ég veit ekkert um þrátt fyrir að hafa náð að venja mig af kvölddrykkjunni fyrir svefninn. Bjórbyttur geta vel átt við áfengissýki að etja.
Fyrir mér er ofneysla áfengis reyndar aumingjaskapur. Asnaleg afsökun þeirra sem nenna ekki að hætta drykkju. Fræðingarnir kalla það sýki til að fá eitthvað að gera í stað þess að viðurkenna að þau sem drekka of mikið eru bara ræflar og lúserar sem hafa gefist upp á lífinu. Þannig var það að minnsta kosti í mínu tilfelli.