Merkilegt að nú bíður fólk spennt eftir að geta kosið aftur íhald og fjósafasista til valda í landinu. Liðið sem setti okkur á hausinn! Hvernig væri nú að hugsa aðeins og meta árangur sitjandi ríkisstjórnar mínus umsóknina að ESB?
Í kringum okkur eru lönd eins og Grikkland að fara á hausinn vegna þess að þau neita að horfast í augu við skuldavandann. Það höfum við gert en jafnframt hægt á öllu efnahagslífinu til að halda sjó. Slíkt skilja ekki sjálfselskir og samvinnusinnaðir.
Þau vilja keyra allt aftur til 2007 þegar svartur Range Rover var vinsælasti fjölskyldubíllinn og enginn gat verið þekktur fyrir annað en að búa að minnsta kosti í vel búnu raðhúsi. Fátæklingar sem fengu ekki lán bjuggu í blokkum.
Smávægileg fjármálakreppa ríkir í hinum vestræna heimi og við viljum fara að skipta um stjórn vegna þess rétt eins og illa gefnir bandarískir kjósendur sem kusu tvisvar yfir sig George Bush yngri. Skilja ekki að það þarf tvö kjörtímabil til að greiða upp syndir fyrri stjórnar.
Tvö kjörtímabil vinstri stjórnar þarf einnig til að hreinsa upp viðbjóðinn sem Sjálfstæðisframsókn skildi eftir sig. Annars náum við ekki aftur landi í fjármálum landssins. Sýnum smá skynsemi og auðmýkt. Högum okkur ekki eins og alkahólistar í leit að næsta sopa.