Litla Ameríka

Hvað ef sömu vopnalög giltu hérlendis og í Bandaríkjum Norður-Ameríku? Guð minn góður segi ég nú bara.  Við gerum grín að Könunum en föttum um leið ekki hve stuttur þráðurinn er í mörgum okkar.  Myndi að minnsta kosti falla einn á dag fyrir byssuskoti.

Prófaðu bara að ganga út í búð og fylgstu með umferðinni.  Mætti halda að bavíanar væru undir stýri.  Þorrinn ekur eins og fábjánar.  Palli einn í heiminum og öll hin eru fyrir mér.  Tefja mig.  Farðu frá, Húsa liggur á!

Finnst stundum eins og breyttu jepparnir sem bruna frekjulega eftir strætum borgarinnar óski sér að vera með fallbyssu upp úr þakinu til að ryðja smábílum úr vegi.  Og alltaf skulu þeir leggja upp á eyjum milli stæða við Bónus.  Bara af því þeir geta það.

Ímyndaðu þér bara ef svona hálfvitar mættu ganga með skammbyssur sér til varnar.  Við yrðum plöffuð niður fyrir minnstu yfirsjónir.  Fyrir að fara í taugarnar á þeim.  Veit að ég yrði skotinn á ferð út um jeppagluggann þar sem ég silaðist fótgangandi meðfram veginum.

Já, við erum jafn vitlaus og lýðurinn vestan meginn við okkur.  Þau ætla að kjósa aftur yfir sig hrunverjana og við ætlum að gera slíkt hið sama.  Í báðum löndum ríkir almennt blackout.  Enginn man hvers vegna löndin okkar eru við það að fara á hausinn.

Færðu inn athugasemd