Vorkenni lögreglu og leigurum í nótt. Siggi Hlö með haustball sitt í Vodafonehöll Vals. Sálin á Spot í Kópavogi. Rokkjötnar í Kaplakrika. This night will be legend…ary! Og svo öll eftirpartýin. Ja, hérna, hér!
Ef til vill of mikið í boði. Kannski nennir fólk hvergi og hangir bara fullt og vitlaust heima hjá sér nágrönnum sínum til ama og andvöku. Bíður gestum í heimsókn sem dregst fram eftir nóttu með síauknum hávaðastuðli og slagsmálum í lokin.
Ég kenni okri og ofursköttum á áfengi um. Skemmtanalífið myndi siðmenntast töluvert ef brjóstbirtan kostaði ekki svona mikið í einokunarbúðum ríkissins. Skammarlegt af stjórnvöldum að níðast svona á okkur eyjaskeggjum sem getum ekki skroppið yfir landamæri í ódýrari vörur eins aðrir Evrópubúar.