…hvernig farþegar Borgarlínu eiga að komast yfir akreinar beggja megin við borgarlínuna. Yfir brú, undir götuna eða kannski bara gamaldags ljósstýrða gangbraut sem mun hægja enn frekar á umferð beggja átta.
Og af hverju þarf gang- og hjólastíg beggja megin á Suðurlandsbraut þegar annar er þegar til staðar í Laugardalnum? Má þá kannski hlífa bílastæðum sunnan megin hjá fyrirtækjum.
Finnst eins og skipuleggjendur Borgarlínu viti alveg að dæmið gengur engan veginn upp en dæli samt út teikningum sem standast enga skoðun. Vita eflaust að þetta mun aldrei fara í framkvæmd. Eru bara leiktjöld svo hægt sé að þétta byggð og byggja rándýrar íbúðir meðfram fyrirhugaðri borgarlínu.
Einfaldast væri bara að búa til meira rými fyrir strætó beggja megin á stofnbrautum. Jafnvel fórna hægri akreiðinni þar sem þær eru bara tvær. Rauðar akreinar sem aðeins strætó, sjúkrabifreiðar og leigubílar mega nota. Og fjölga ferðum enn frekar á álagstímum. Rafvæða flotann í heild sinni.
Og snúa við einkavinavæðingu Strætó s.f. Nú þegar eru tveir þriðju vagnanna í eigu einhverra verktaka og stefnan á að allir verði það innan fárra ára. Hvaða endemis vitleysa er það eiginlega! Að reka eldgamla og orkufreka vagna á flestum leiðum með misdónalegum bílstjórum sem sumir skilja hvorki íslensku né ensku og eru alltaf í símanum.
Gömlu tímana gefðu mér með síðasta lagi fyrir fréttir á Rás 1 og íslenska bílstjóra sem hleyptu manní út þegar maður hringdi bjöllunni tímanlega og óku ekki um götur borgarinnar eins og andskotinn væri á eftir þeim. Þegar hægt var að sitja í rólegheitum og horfa út um gluggann án hávaða úr snjallsímum samfarþega.
Kannski væri best að leggja megnið af Strætó niður og sameina restina við Pant akstursþjónustu og leigubílastöðvarnar. Farþegar með bílpróf myndu svo fá myndarlegan styrk til að kaupa rafbíl á nokkurra ára fresti til að fara ferða sinna um borgina.