Leið 28 úr Dalaþingi laugardaginn 25. apríl kl. 19:32. Erlent par við stýri. Hún ók meðan hann sagði henni til á einhverju hrognamáli sem ég skyldi ekki.
Frekar fámennt í vagninum fram að Smáralind þegar sex tólf ára krakkar stormuðu inn. Kom fljótt í ljós að þau höfðu stigið inn í vitlausan vagn. Voru á leið í Hörðuvallaskóla en þessi í Hamraborg.
Þegar einn af þeim spurði bílstjórann hvert við værum að fara svaraði snakksmjattandi kærastinn: „english please, english“. Fékk upp í kok og hoppaði út við MK og tók fjarkann heim þaðan.
Við tölum íslensku hér!