Miðaldra mótþrói gagnvart framtíðinni

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-20-netsala-afengis-opinn-krani-fyrir-born-og-unglinga-476046

Alltaf skulu þetta vera miðaldra menn með mótþróa gagnvart framtíðinni. Skilja ekki að ríkiseinokun á sölu áfengis dugar ekkert lengur sem forvörn fyrir unglinga sem vilja detta í það og drýgja hór á framhaldsskólaböllum. Rétt eins og þeir gerðu sjálfir forðum daga áður en þeir hættu að drekka og ríða og gerðust heilagri en sjálfur páfinn í Róm.

Netverslun hefur tekið yfir hefðbundnar verslanir. Keypti mér hárklippur um daginn og gerði mig að algjöru fífli með því að mæta á staðinn og ætla að grípa umbúðir úr hillu. Þurfti að fara í gegnum starfskonu sem svo sótti gripinn inn á lager. Hefði verið fljótari að ganga frá kaupunum fyrirfram á netinu og svo sækja eins og kúnnarnir á undan mér höfðu vit á að gera. Eða láta senda heim.

Nú hef ég pantað áfengi heim nokkrum sinnum. Sérstaklega þegar ég lá hreyfingarlaus heima og komst ekki út í búð. Ég var ALLTAF beðinn um skilríki þrátt fyrir að vera miðaldra. Fyrir það fyrsta þá getur þú ekki pantað á netinu án rafrænna skilríkja. Sem þýðir að einhver með aldur er að panta fyrir unglingana. Rétt eins og fyrir tíma netsins þegar við báðum einhvern um að grípa flösku fyrir okkur í leiðinni. Oftast voru það miðaldra karlar sem sáu aumur á okkur og vildu ekkert í staðinn. Mundu hvernig var að vera ungur og ör á fleygiferð til fullorðinsáranna.

Færðu inn athugasemd