Norður-Dakóta

http://www.ruv.is/frett/motmaelendum-i-n-dakota-gert-ad-ryma-tjaldbudir

https://www.washingtonpost.com/business/republican-senator-pipeline-protesters-should-leave-camp/2016/11/26/a53051bc-b3f3-11e6-bc2d-19b3d759cfe7_story.html

Gráðugir olíubarónar ætla að vaða yfir helg lönd og vatnsból Sioux indíána í Norður-Dakóta með olíuleiðslu sína.  Enn er verið að níðast á frumbyggjum Ameríku.  Væri ég ríkur og frægur maður með gítar og sæmilega rödd myndi ég umsvifalaust mæta á slétturnar og sýna samstöðu.

En kannski þarf ekki frægð og ríkidæmi.  Af hverju tekur ekki venjulegur launaþræll upp á Íslandi með mögulega smá indíánablóð í æðum sér vetrarfrí og brunar til Bandaríkjanna til að styðja við systur sínar og bræður í Sioux ættbálknum!

Djöfull langar mig.  Þoli ekki svona yfirgangsseggi með spillt stjórnvöld að baki sér sem níðast á fólki sem hefur þurft að þola meira en nóg í gegnum aldirnar.

Hugur minn er hjá Sioux indíánunum og stuðningsfólki þeirra við Cannon Ball í Norður-Dakóta.  Nóg er komið af níðingsskap gagnvart þessum verndurum landsins.

Hófleg drykkja bjargar lífum!

Í hræðslu sinni, fávisku og heimsku kýs fólk yfir sig fasista, kvenhatara og illmenni. Það gerðist í henni Ameríku fyrir rúmri viku síðan.  Það gerðist hérlendis þegar 40% þjóðarinnar hélt áfram trúnaði við sjálfgræðgislið og eiginhagsmunapotara fráfarandi stjórnarflokka.

Aumt að horfa upp á þjóðarleiðtoga óska Prump til hamingju og vænta þess að samstarf þjóðanna verði áfram gott.  Geta gleymt því.  Maðurinn hefur aldrei reykt eða drukkið alla sína ævi.  Þannig mönnum er ekki treystandi.  Og varla lýgur sjálfur Sinatra um slíkt.

Sjáið bara helvítið hann Hitler sem át bara gras, reykti ekkert og snerti aldrei áfengi. Leiddist svo rosalega að hann fór í stríð gegn öllum nágrönnum sínum og var með tóm leiðindi sem kostuðu milljónir lífið.

Hófleg drykkja bjargar lífum!

Trodd’essu í Trumpinn á þér!

Ég varð æfur þegar helvítið hann George W. Bush varð forseti Bandaríkjanna.  Fékk mína útrás með því að æpa á sjónvarpið og hrista hausinn yfir heimskingjunum handan hafsins. En róaði mig svo með því að svona vitleysa myndi ekki gerast aftur.  Viti menn, fíflið var endurkosið.  Róaði mig þá með því að aldrei yrðu Kanarnir eins heimskir í þriðja sinn.

Svo kusu þessir þöngulhausar rasista, kvenhatara og almennt svín yfir sig á þriðjudaginn. Undarlegt en satt þá varð mér bara alveg sama.  Ég bý ekki í þessu bjánalandi.  Verði þeim að góðu!  Republikanar geta troðið því í Trumpinn á sér.