Flóttamenn af þingi eru þvílíkír snillingar. Segja af sér þingmennsku með sex mánaða biðlaun upp á vasann. Svo bíður þeirra einhver feit embætti.
Af hverju dröslast ég ekki bara á þing! Besti díllinn í bænum.
Flóttamenn af þingi eru þvílíkír snillingar. Segja af sér þingmennsku með sex mánaða biðlaun upp á vasann. Svo bíður þeirra einhver feit embætti.
Af hverju dröslast ég ekki bara á þing! Besti díllinn í bænum.
Mér hefur verið tjáð að ég eigi rétt á sæmilegum bótum frá tryggingarfélagi þess sem reyndi að myrða mig með sendibílnum sínum. Eigi bara að leyfa einhverju af bótafyrirtækjunum að sjá um kröfuna og að þau fái greitt fyrir þjónustuna frá sama tryggingarfélagi.
Ég sem ætlaði að fara að berjast við vindmyllur kerfisins upp á eigin spýtur.
Síðustu daga hef ég komist á fætur innan hverfisins með góðum hvíldum. Til heilsugæslunnar, út í búð og jafnvel í útskriftarveislu frænda míns (fékk far fram og til baka). Þess á milli hef ég bara sofið og hvílt skrokkinn. Verkjar enn út um allt og gruna að ég hafi brákað nokkur rifbein.
Hef ekkert heyrt í lögreglunni. Enda býst ég ekki við neinu frá þeim. Eiga sennilega eftir að kenna mér um að hafa gengið viljandi fyrir bílinn og sé því í sök. Eins tryggingafélagið. Öllu verður reynt að klína á mig. Er hálf hissa á að hafa ekki fengið hótunarsímtal utan úr bæ á ensku um að kæra ekki.
Er enn reiður helvítis bílstjóranum fyrir að halda því fram sigri hrósandi að hafa verið í rétti. Eins og ég hafi ráðist á sendibílinn hans af fyrra bragði. Svo fór hann í fórnarlambsgírinn um leið og hann sá villu síns vegar. Fór eitthvað að væla og vildi tala við mig. Eins og afsökun myndi firra hann allri sök.
Vonandi missir hann meiraprófið, ef hann er þá með eitthvert slíkt.