Baby Reindeer

Rúllaði í gegnum þessa sjö þætti á tveimur dögum. Get ekki sagt að mér hafi liðið vel eftir áhorfið.

Persónurnar flestar einmana og misnotað fólk án viðbjargar. Sjálfu sér verst þrátt fyrir allt góða fólkið í kringum þau að reyna að hjálpa þeim frá eigin sjálfskaparvíti.

Harris/?

Joe Biden kýs að hlusta á þær raddir sem telja hann orðinn of gamlan og elliæran til að sækjast áfram eftir embætti forseta Bandaríkjanna. Ólíkt Donald Trump sem hlýðir á engar raddir því hann er eigingjarn fáviti sem hatar landa sína.

Styttur verða reistar af Biden en engar af Trump. Jafnvel þó hann nái að svindla sér aftur inn í Hvíta húsið í nóvember. Bandaríkin eiga bara svo miklu betra skilið þó helmingur kjósenda þess séu slefandi og ólæsir fávitar.

Nú er bara að finna framúrskarandi varaforsetaefni fyrir Kamala Harris svo þessi æpandi aumingi komist ekki aftur í Hvíta húsið.

Vinir Trump

Áberandi var að helstu hausar Sjálfstæðisflokksins hlupu upp til handa og fóta og óskuðu vini sínum Trump bata og fordæmdu árásina á hann. Og skildu ekkert í því að aðrir Íslendingar finndu eitthvað að slíkum rasssleik.

Diljá Mist fór að grenja yfir skautun sem mætti ekki aukast. Eigum sem sagt að hætta að hata Trump því hann á svo bágt eftir að hafa sullað yfir sig tómatsósu og skáldað upp skotárás á sig sem lenti á áhorfendum í staðinn fyrir hann.

Hvernig getur nokkur flokkur hérlendis stillt sér sér upp við hlið Republikanaflokks Trump? Og á slíkur flokkur nokkurt erindi hérlendis? Eða tilkall til valda! Hefur hann ekki stimplað sig endanlega út úr íslenskri pólítík!