Djammkenndar draumfarir

Síðastliðna vinnuviku hef ég oftar en ekki verið staddur í einhverjum gleðskap meðan ég svaf sáttur á svæfli mínum. Nú síðast í brúðkaupi út á landi.

Þar var sómapar að endurnýja heit sín en hafði láðst að láta gesti sína vita að greiða þyrfti 34.900 kr. við innganginn í veisluna. Þar stóð ung kona með posa og heimtaði greiðslu fyrir sneið af brúðkaupstertunni, þriggja rétta máltíð og skemmtiatriði.

Þverhausinn ég og eitthvert lið með mér sögðum nei og skunduðum á næsta bar. Meira man ég ekki.

Djöfullinn danskur

Aldrei er hægt að treysta á Dani. Léku seinni hálfleikinn eins og hálfvitar upp í hendur Frakka svo þeir þyrftu ekki að mæta okkur aftur og mögulega tapa. Vita að þeir þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af Frökkum. Þeim er auðmútað fyrir séns í úrslitunum.

Sagan endalausa

Reiknilíkanið er farið í gang. Sóttkvíin út á miðnætti og allir smitandi krakkaskítarnir mæta í skólann í fyrramálið. 2000 smit fyrir helgi. 2500 eftir helgi þegar létt verður á samkomutakmörkunum. Fáum um frjálst höfuð að strjúka eitthvað út febrúar. Öllu skellt aftur í lás í mars og fram eftir vori. Opnað aftur í júlí. Lok, lok og læs í ágúst. Sagan endalausa.

Afléttingaráætlun stjórnvalda birt á föstudaginn kemur. Verður áhugavert að sjá hvort að farið verður eftir sóttvarnalækni með hægum afléttingum eða Bjarna Ben. og allt draslið opnað. Skiptir svo sem engu. Ekki eins og að talið sé inn í búðir í núverandi takmörkunum eða gengið eftir að fólk beri grímur.

Strætóbílstjórar eru grímulausir og flestir unglingar og börn í vögnunum hóstandi yfir mann. Fólki er drull og ekkert eftirlit er nema með börunum. Að þar séu nú ekki of margir að lyfta glasi og hanga of lengi við djammið. Fáranlegt!

Enda verður það kvöl og pína fyrir bareigendur að fá aftur að hafa opið fram eftir nóttu án fjöldatakmarkana. Lögreglan og sóttvarnayfirvöld vilja ekki skila aftur rekstrarréttindum þeim sem vertarnir nutu fyrir Covid-19. Það er víst ljótt að drekka, dansa og daðra fram á nótt.