Samfélagsástandið

Tvær systur reyna að næla sér í smá hluta af drjúgum auði aðals og eru handteknar. Eru aftur teknar höndum fyrir að þiggja bætur fyrir nauðgun frá einhverjum vafasömum gosa með gamalt og virt ættarnafn.  Myndi vera tekið svona harkalega á þeim af yfirvöldum og dómstóli götunnar ef þær væru bræður? Konum er refsað verr en körlum fyrir að misstíga sig.

Landið logar í verkföllum og eina sem ríkisstjórnin færir fram er einhver óljós sáttanefnd sem á að leysa málin svo ekki komi til lagasetningar.  Í stað þess að taka á vandanum er honum varpað áfram yfir á einhverja aðra ótilgreinda. Lengt í hengingarólinni í stað þess að bara semja og ljúka verkföllunum. – Talandi um verklausa ríkisstjórn!

Dónakallar landsins skjálfa á beinunum vegna Beauty Tips á Facebook.  Síðu sem spratt upp úr spurningunni „hefur þú lent í Sveini Andra?“  Lýsingar fórnarlambanna eru orðnar það nákvæmar að nöfn níðinganna eru nánast óþörf. Lesendur kveikja strax á perunni.  Skömminni er skilað til heimahúsanna þar sem hún á heima.

Hér hefur dónaskapurinn og níðingshátturinn fengið að þrífast óáreittur áratugum saman undir vernd dómstóla og ráðandi afla = feðraveldisins.  Löngu kominn tími til að konur fái að njóta sín án áreitis frá dónalegum körlum með typpin hangandi út um buxnaklaufar.

#Þöggun

http://www.mbl.is/smartland/samskipti/2015/05/29/segir_sogu_sina_vard_fyrir_hopnaudgun_17_ara/

Netbylting á sér stað á leynilegri og lokaðri Face­booksíðu Beauty Tips. Þar koma konur fram í hrönnum og skila skömminni til gerenda sinna. Segja sínar sorglegu sögur. Sem er gott og vonandi frelsandi fyrir fórnarlömb lítilla, ljótra karla sem vanalega sleppa alveg við refsingu fyrir glæpi sína því karlægt dómskerfi verndar þá undir því yfirskini að sönnunargögn og vitni skorti.

Ömurlegt hve margir kynbræðra minna eru illa innrættir og heimskir og koma fram við konur eins og dauða hluti í stað jafningja og félaga. Hvað er svona flókið? Stundum skammast ég mín fyrir að hafa fæðst drengur. Hvað er svona merkilegt að vera með pung?

Trú og stjórnmál eiga enga samleið

Listaverkinu í Feneyjum var loksins lokað af lögreglu borgarinnar. Enda verið að brjóta samkomulag með því að leyfa bænahald múslima innan í fyrrum kaþólskri kirkju. Nóg var nú að dreifa grænum mottum yfir gólfið.

Hugmyndin var þannig séð góð. Að ólík trúarbrögð ættu að geta lifað saman. Sem er náttúrulega bull og vitleysa. Snemma á sýningarferlinu tók Ibrahim Sverrir Agnarsson formaður félags múslima á Íslandi öll völd og fór að lóðsa trúarbræður sína inn í hina fyrrum kaþólsku kirkju til bænahalds.
Þvert gegn samkomulagi við borgaryfirvöld. Stal þar með verkinu á einu bretti frá svissneska listamanninum.

Í augum kristinna lítur svona listaverk út eins og yfirgangur múslima. Fylgismenn Múhameðs að taka yfir kirkju og breyta henni í mosku. Birtingarmynd þess sem koma skal í Evrópu í framtíðinni samkvæmt plani múslima ef þeir einir fá að ráða.

Menn munu neyðast til að láta sér vaxa skegg og klæðast kuflum. Skeggið er reyndar nú þegar komið í gegnum hipsterismann hér á Íslandi. Konur verða reknar inn í búrkur og undirgefni. Að ganga skrefi aftar en menn sínir. Hendur höggnar af þjófum og dætur drepnar fyrir að gjóa augum að drengjum utan islam. Er þetta það sem við viljum? Er þetta hin svokallaða fjölmenningarstefna að verki?

Nei, þetta er uppskrift að nýrri heimsstyrjöld þegar kristnir jafnt sem og þeir (ég) sem hafa gengið af trúnni sættum okkur alls ekki við framandi og kúgandi trúarafl förum að spyrna við fótum og setja spurningarmerki við yfirgang múslima. Undanlátssemi við nasista kom Evrópu inn í seinna stríð. Látum ekki undanlátssemi við múslima verða kveikjuna að þriðju heimsstyrjöldinni.

Trúarbrögð eru til alls ills. Þannig er það. Sagan sannar það ítrekað. Punktur og basta! Trú og stjórnmál eiga enga samleið.