Atvinnuþref

Vorið stendur á sér. Samningar eru langt fjarri okkar ströndum og einungis fleiri verkföll í farvatninu. Kjötskortur í búðum og á veitingahúsum. Heilbrigðiskerfið að hruni komið. Og ríkisstjórn hinna ríku bara með derring og kjaft eins og vanalega.

Nýtt tilboð á borðinu sem gæti leyst vandann en ber því miður með sér kröfu atvinnurekenda um lengingu á dagvinnutíma. Hér og nú er ekkert pláss fyrir kröfur vinnuveitenda. Þær verða að koma seinna. Ekki núna þegar þarf að koma samfélaginu aftur í gang.

Þetta skilja ekki gráðugir eigendur fyrirtækja. Þeir vilja fá eitthvað til baka fyrir að láta eftir agnarögn af arði sínum í launabætur. Þessir menn æpa æfir af reiði þegar þeir neyðast til að skilja
við eiginn saur ofan í salernisskálina. Svo samansaumaðir eru þeir.

Stöðugleiki efnahagslífsins er hugmynd hinna ríku um að þeir þurfi ekki að sjá eftir meira af auði sínum í auknar launagreiðslur. Arður þeirra má ekki við því. Þeirra draumur felst í að þrælahald snúi aftur.

Verkföll eru úrelt

Mér finnst ótrúlegt að meirihluti meðlima flestra verkalýðsfélaga landsins skuli kjósa að fara í verkfall. Er þetta lið búið að gleyma að við erum rétt skriðin upp úr efnahagshruni sem setti okkur næstum á hausinn? Að kannski sé nú ekki svo mikið til skiptanna eftir að eigendur, stjórnarformenn og forstjórar fyrirtækja í einkageiranum hafa rakað til sín margföldum kauphækkunum og arði á skömmum tíma.

Hér er allt í frosti og mun ekkert breytast áður en allsherjarverkfall skellur á í lok mánaðarins. Ríkisstjórnin ætlar ekkert að gera fyrr en aðilar semja. Samtök atvinnurekenda ætla ekki að beygja sig. Verkalýðsfélögin bakka ekki.

Við erum búin að vera. Septemberverkfallið 1984 snýr aftur tvöfalt verra og engum til hagsbóta. Tilgangslaus vinnustöðvun til tómra leiðinda fyrir alla hlutaðeigandi. Þetta er gamaldags baráttuaðferð sem hefur ekkert bit lengur. Þetta gekk sæmilega upp 1955 og kannski 1984. En mun ekki ganga núna.

Ég hallast að því að óhlýðnast kalli um að leggja niður störf ef að því kemur nema vinnuveitandinn reki mig á dyr. Ég er og hef alltaf verið á móti verkföllum. Þau þjóna engum tilgangi lengur nema að blása smá vindi undir veikburða vængi verkalýðsforkólfa sem hafa ekki staðið sig í stykkinu við að halda kjörum okkar uppi. Hvað ætla verkfallsverðirnir að gera. Beita mig hörku? Hver er bættari með slíku?

Afskiptasemi andskotans

Við Íslendingar hljótum að vera leiðinlegustu nágrannar í heimi. Getum varla búið saman í fjölbýli án þess að skipta okkur af næsta manni. Vera með leiðindi og frekju. Bara af því að við höldum að við megum það. Og oftast af fólki sem er hvorki með ófrið um nætur eða leiðindi á móti.

Nei, hér er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Á öryrkja og innigæludýrin þeirra sem bögga engan. Jú, nema þessa tvo nöldurseggi í blokkinni sem vita af þeim og geta ekki sofið um nætur með þá vitneskju í höfðinu. Kvarta þess vegna og kveina þar til dýraeigendunum er gert að ganga frá loðnum félögum sínum ellegar missa íbúðirnar sínar.

Ég get vel skilið að sumt fólk kunni ekki að meta gæludýr. Eflaust vegna þess að þau ólust ekki upp með dýrum. Kannski voru foreldrar þeirra þverir, skverir og hötuðu dýr. Mér þykir leitt að þau hafi misst af upplifuninni. Öll börn ættu að fá að knúsa hund, kött eða hvað sem er með fleira en tvo fætur.

Sumir röflarnir segjast vera með ofnæmi og þess vegna þurfi að murka lífið úr gæludýri nágrannans. Þetta er sama liðið og kvartar yfir grilllykt af svölum hinna íbúanna. Sömu tautararnir og mega ekki heyra í börnum án þess að reka upp ramakvein. Öskra svo og stappa niður fótum þegar þau fá ekki sínu framgengt. Svona lið á að búa eitt og yfirgefið upp á fjöllum fjarri mannabyggð. Alls ekki í fjölbýli!