Eitthvað til skiptanna

Simmi D. segir að fólk sé farið að skynja að eitthvað sé til skiptanna. Þess vegna séu kröfurnar svo háar. Og hvað með það! Megum við maurarnir ekki fá smá hlutdeild í bættu gengi landsins? Er það ófrávíkjanleg regla að gróðinn eigi að fara óskiptur í vasa atvinnurekenda og flokkseigandafélaga Framsóknar og Sjálfstæðisflokks?

Hér er duga engin verkföll. Hér hafa göngur og ræðuhöld á 1. maí ekkert að segja. Hér er þörf á byltingu. Að skjóta einni silfurhúfunni skelk í bringu hinum til viðvörunar svo þetta gráðuga pakk fattar að okkur er dauðans alvara að vilja lifa af laununum okkar. Að við samþykkjum ekki enn einn 2007 snúninginn. Ísland þolir ekki annað hrun.

Ég var ellefu ára 1984 þegar allsherjarverkfall skall á í september. Þvílík djöfulsins leiðindi og tilgangsleysi. Þar sannfærðist ég um að verkföll skila litlu sem engu þegar upp er staðið. Bara gerð til þess að láta okkur finnast við hafa einhver áhrif og völd.

Lausnin er einföld.

Mikið er leiðinlegt að þurfa að horfast í augu við afleiðingar eigin lífernis.  Að vera orðinn feitt flón með háþrýsting, áunna sykursýki og kæfisvefn.  Er ekki að meika grímuna sem ég á að vera með um nætur til að anda betur.  Við erum ekki vinir.

Finnst eins og eigi að aflífa mig.  Rétt eins og þegar verið var að svæfa mig í æsku. Leið alltaf ömurlega og fannst eins og verið væri að lóga mér.  Bjóst ekki við að vakna aftur.  Kvaddi í hvert sinn í huga mér.

Eflaust vegna þess get ég ekki sofið með grímu fyrir vitum mér.  Einnig vegna þess að ég vil ekki fá enn eitt hjálpartækið til að draga fram andann.  Hvernig væri bara að grenna sig og hætta þessu pilluáti og grímuglímu!  Come on! Lausnin er einföld! Hætta þessu sukki!

Gott, blessað og fallegt.

stundin.is/frett/eina-lesbian-i-baenum-eg-tharf-ekki-ad-fela-mig/

Í kjölfar fáranlegrar baráttu Gylfa Ægis og innhringjanna í símatíma Útvarp Sögu gegn tillögu í Hafnarfirði um að fræða grunnskólanemendur betur um samkynhneigð kom demantur út úr skápnum á Höfn á Hornarfirði með hjálp vinkvenna sinna. Virkilega falleg útganga úr skápnum.

Hef reynt að hlusta á svartagallsrausið á Útvarpi Sögu en gefist jafnharðan upp. Þetta lið er ekki í lagi!  Það er statt einhvers staðar aftur á myrkum miðöldum og algjörlega úr takti við samtíma sinn að berjast við vindmyllur.

Í raun sorglegt að sjá þetta lið koma sér út úr íslensku samfélagi með taktleysi sínu. Það á illa afturkvæmt með slíka fordóma á bakinu gagnvart samborgurum sínum. Gleðigangan er fyrir löngu komin til að vera.  Sættið ykkur við það og gleðjist með okkur hinum.

Internetið er meira en tuttugu ára gamalt þar sem allt blasir við forvitnum börnum hafi þau metnað til að leita. Og þetta lið í kringum Útvarp Sögu rembist eins og rjúpan við staurinn til að koma í veg fyrir sakleysislega fræðslu um samkynhneigð í grunnskólum Hafnarfjarðar svo blessuð börnin leggi skólafélaga sem eiga tvær mömmur eða tvo pabba síður í einelti.  Svo börn sem hrífast af aðila af sama kyni finnist þau ekki vera öðruvísi eða síðri en bekkjarfélagar sínir.  Að slíkt sé eðlilegt.

Hvað er eiginlega að þessu liði?  Þykjast vera vernda börnin en eru í raun að reyna að viðhalda skakkri og þröngri mynd af samfélagi sem gekk í aldanna skaut fyrir meira en tveimur áratugum síðar.

Sorry Gylfi Ægis og Útvarp Saga.  21. öldin er löngu hafin og þið sitjið enn langt eftir á þeirri 20. með þvermóðskusvip og samanbitnar varir yfir allri þróuninni sem hefur orðið.  Auðvitað er erfitt fyrir suma að sætta sig við að samkynhneigðir séu komnir með sömu réttindi og við hin gagnkynhneigðu.

Erfitt að sætta sig við að við fæðumst ekki öll með sama prógrammið innprentað í heilabörkinn og það sé ekki hægt að „afhomma“ fólk.  Og sennilega erfiðast að sætta sig við að ástin spyrji hvorki um stétt, stöðu né kyn.  Að henni verði ekki stjórnað með boðum, bönnum eða þröngsýni.  Að þetta snúist um tilfinningar en ekki bara kynlíf.  Að hrífast af aðila af sama kyni sé bara gott, blessað og fallegt.