Hvar sem ég kem sé ég framhaldsskólastráka í buxum með víðum skálmum. Rétt eins og þeir hafi keypt þær í Hagkaup árið 1980 ásamt síðum nærbuxum. Hvernig getur þetta talist flott!
Flokkur: Uncategorized
Brúðkaup á götum úti
Hef fengið frásagnir af brúðkaupi miðausturlendinga sem fór fram um daginn á götum borgarinnar svo að af hlutust umferðartafir og truflanir. Bílalest nýrra og vel fægra bíla sem tóku báðar akreinar í Engihjalla og brunuðu svo upp í Ártúnsbrekku með flauturnar í botni. Vantaði bara Kalashnikov riflana skjótandi upp í loftið.
Lögreglan muldraði eitthvað í móinn en þorði ekki að beita valdi eftir að hafa áminnt ökumenn um að svona athæfi væri ólöglegt hérlendis án tiltekins leyfis. Enginn vill vera kallaður rasisti eftir að hafa fengið fingurinn frá samfélagi vestubæinga á Íslandi og vera slaufað.
Skilst að einhverjir miðlar eins og Vísir hafi fjallað um málið en snögglega tekið færslu sína út af ótta við álitið vestan við lækinn. Þú mátt ekki lengur benda á að konungurinn sé klæðalaus.
Go tell it on the mountain, over the hills and everywhere
Trump mun ekki sigra!
Putin mun ekki sigra!
Nasistarnir munu ekki sigra!
Fasistarnir munu ekki sigra!
Miðflokkurinn mun ekki komast í ríkisstjórn!