Davos

Reyndi að hlusta á gerpið en gafst fljótt upp. Maðurinn lýgur og lýgur. Af hverju er Evrópa að krjúpa fyrir þessum andskota!

Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu mætti á svæðið en fékk ekki að halda ræðu samkvæmt skipun frá Hvíta húsinu. Kom einmitt með hnéhlífar fyrir evrópska leiðtoga fyrst þeir ætluðu að skella sér á hné fyrir appelsínugula gerpið.

Carney forsætisráðherra Kanada stal senunni með þrumuræðu. Kennedybragur þar á ferð. Væri ekki betra ef Kanada tæki yfir Norður-Ameríku!

Af hverju Borgarlínan mun misheppnast

° Íslendingar eru bílaþjóð. Nennum ekkert að hanga í strætó ef við getum komist hjá því.

° Meirihluti farþega strætó eru erlent vinnuafl öskrandi í símann sinn. Restin eru unglingar ekki komnir með bílpróf horfandi á myndbönd í símanum sínum á hæsta hljóðstyrk.

° Er mikið að pæla í að kaupa mér lítinn rafbíl eða vespu. Nenni þessu ekki lengur!