„Ég neyti ekki….“

Ég trúi lítið á bindindi.  Skil ekki til hlítar pælinguna.  Að hætta einhverju um aldur og ævi.  Við erum ekki svo fullkomin.  Að neita sér alfarið um eitthvað hlýtur að kalla á aðra fíkn.  Svo einfalt er það.

Óþolandi fólk sem montar sig í sífellu af því að neita sér um hinar ýmsu lífsins syndir eins og tóbak, vín eða feitt kjöt.  Geta þau ekki bara haldið kjafti!  Við hin eigum nógu erfitt fyrir.

Verum ekki svona viðkvæm!

Nakin miðbæjarhetja var handtekinn síðustu helgi fyrir að fara með sveðju á eftir þremur hlandhausum sem migu á svefnherbergisgluggann hans.  Í gærmorgun var vonsvikinn gaur settur í járn fyrir að ætla að gleðja sjálfan sig fyrir framan hóp af öðrum djömmurum niður á Hverfisgötu.

Frétt þessa efnis birtist á netmiðlunum mbl.is, visir.is og dv.is.  Þvílíkur glæpur sem maðurinn framdi frammi fyrir hópi af öðrum spólgröðum og sótdrukknum einstaklingum.  Mætti halda að hann hefði beint byssu að liðinu.

Þarna voru engin börn á ferli.  Hvert var vandamálið.  Til hvers að eyða dýrmætum tíma lögreglunnar í slíkt smáræði og rugl.  Höfum við ekki öll séð typpi áður.  Meiri smámunasemin í fólki.

Væri nær að lögreglan drullaðist í úthverfin og snéri niður ofbeldisfulla heimilisfeður og leysti upp eftirpartý.  Eða hjálpaði leigubílstjórum sem þurfa að þola líkamsárásir hverja helgi.

Hvar er glæpurinn í því að kippa í kvikindið fyrir framan fullorðið fólk? Kannski ef viðkomandi myndi missa úr honum yfir einhvern.  Þá má rukka fyrir hreinsun á flíkinni.  Verum ekki svona viðkvæm!

Offita = holdsveiki

„Hei, feiti karl“ öskruðu tveir 10-12 ára guttar meðan ég kjagaði eftir Álfhólsveginum.  Maður hleypti mér yfir götuna en ók svo hægt af stað þegar ég steig fyrir bílinn.  Las úr glottinu hans að ég fituhjassinn hefði bara gott af því að ganga aðeins hraðar (annars myndi hann aka yfir mig).

Mér er svo sem sama hvað fólki finnst.  En skil um leið aðra of þunga sem þora ekki út fyrir hússins dyr af ótta við háð og spott frá tungum hrjúfum. Hatursfull augnaráð og bendingar.  Við eigum greinilega bara að koma út í skjóli myrkurs svo fullkomna fólkið brenni ekki í sér augun.

Hefði ég enn eitthvert skap þá stæði ég í sífelldum slagsmálum við vitgrannt pakk sem getur ekki unað okkur feitu að sjást í björtu.  Hefur þetta lið ekkert skárra að gera við tímann sinn?