Ávísun á fordrykk

Hef stundum pælt í því þegar ég hef rennt yfir þéttsetnar myndasíður af opnunum og frumsýningum í blöðunum og á netinu hvað fólk þurfi til brunns að bera svo það fái boðskort á slíka viðburði.

Kannski fær það bara SMS eða tölvupóst.  Eða mætir bara óboðið á staðinn því það telur sig svo merkilegan pappír. Fínt að fá gefins fordrykki fyrir sukk kvöldsins.  Sennilega er skilyrði að vera heimilisfastur í hverfi 101 í Reykjavík.

Skilanefndasjálftakan

Vogunarsjóðir eru að kaupa upp líkin af gömlu bönkunum fyrir slikk og græða á tá og fingri með því að rukka okkur lánþegana upp í rassgötin. Rýmið fyrir afskriftir er þó vítt og galopið.  Sérstaklega fyrir þá sem bárust á fyrir hrun.

Þess vegna þurfum við vesalingarnir ekki að skammast okkar fyrir að skulda.  Sjóðirnir mega alveg við því að bíða aðeins lengur eftir greiðslum eða einfaldlega verða af þeim fyrir fullt og allt.

Hljóta að geta það fyrst að skilanefndirnar á þeirra vegum mega maka krókinn að vild án þess að sjóðirnir kvarta.  Skammta sér svo ríkuleg laun að fólkið í landinu roðnar.  Og fresta lausn gömlu bankanna eins lengi og þau vilja til að geta fitnað lengur eins og púkinn á fjósbitanum.

Mikið vona ég að spádómurinn úr Back To The Future II rætist þar sem lögfræðingar hafa verið lagðir niður árið 2015.  Mun skilvirkara og sanngjarnara kerfi fyrir okkur flest.

Getnaður

Af hverju í andskotanum er sæðið úr einhverjum dönskum róna notað til að feðra 46 börn, þar af eitt á Íslandi?  Kemur svo í ljós að vesalingurinn er haldinn arfgengum sjúkdómi.

Líkurnar hjá íslenskum stelpum eru skárri með því að bruna fullar niður í bæ og leggjast undir einhvern djammarann.  Senda honum svo meðlagsbeiðni þegar kakan er komin í ofninn.

Eða biðja einhvern vin sinn um að framleiða smá sýni í glas sem má nota.  Til hvers að leyfa Dönum að kynbæta þjóðina.  Bara rugl!